Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2

Kjartan Kjartansson skrifar

Samninganefndir flugmanna og Icelandair hafa setið á fundi í allan dag og góður gangur sagður á viðræðunum. Viðræður félagsins við flugfreyjur hafa aftur á móti siglt í strand og hefur forstjóri Icelandair miklar áhyggjur af stöðunni. Rætt verður við forstjóra Icelandair um málið í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Með áætlun yfirvalda um opnun landamæra er vonast til að unnt verið að auglýsa Ísland sem ferðamannastað án þess að rjúfa samstöðu innan Schengen. Dómsmálaráðherra segir fyrirsjáanleika skipta máli í þeim efnum þó ýmsum spurningum sé enn ósvarað.

Fjöldi þeirra sem leita til Píeta samtakanna vegna sjálfsvígshugsana er þrefalt meiri í aprílmánuði í ár en í sama mánuði í fyrra. Þá leita fleiri áhyggjufullir foreldrar til samtakanna vegna barna sinna. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum. Einnig verður rætt ungt par sem missti aleiguna í bruna á dögunum. Eldurinn kom upp eftir að sex ára sonur þeirra fann kveikjara og þau biðla til barnafólks um að ganga tryggilega frá eldfærum í læstum skápum.

Þá verður fjallað um kröfur ASÍ fyrir hönd launafólks vegna kórónuveirunnar og nýjan íslenskan bíl sem verður tekinn í notkun á Grænlandi. Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×