Innlent

Sandra Líf fannst látin

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sandra Líf Þórarinsdóttir Long var 26 ára.
Sandra Líf Þórarinsdóttir Long var 26 ára.

Sandra Líf Þórarinsdóttir Long, sem leitað hefur verið að frá því aðfaranótt laugardags, fannst látin á þriðja tímanum í dag í fjörunni á Álftanesi, ekki langt frá upphafsstað leitarinnar um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Ekki er talið að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti.

Sandra Líf var 26 ára og búsett í Hafnarfirði.

Fjölskylda hennar vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem veittu aðstoð við leitina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×