Fótbolti

Freyr: Fullur völlur myndi senda skýr skilaboð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Freyr á blaðamannafundinum í dag ásamt aðstoðarmanni sínum Ásmundi Haraldssyni.
Freyr á blaðamannafundinum í dag ásamt aðstoðarmanni sínum Ásmundi Haraldssyni. vísir/stefán
Tvær breytingar eru á leikmannahópi kvennalandsliðsins í fótbolta sem mætir Slóveníu og Skotlandi í síðustu leikjum liðsins í undankeppni EM 2017. Leikurinn gegn Slóvenum, sem Ísland vann 6-0 ytra, verður föstudaginn 16. september en þar geta stelpurnar okkar endanlega tryggt sér sæti á EM 2017 í Hollandi. Ísland er hænufeti frá því að komast á lokamótið en til þess þarf liðið aðeins eitt stig.

Líkurnar á að íslenska liðið tryggi sig á EM annan föstudag eru yfirgnæfandi, með fullri virðingu fyrir Slóvenum, og Freyr Alexanderssonlandsliðsþjálfari vill sjá fullan völl fagna með stelpunum. Að minnsta kosti ekkert minna en áhorfendamet. „Mér er mjög annt um þetta núna,“ segir Freyr við Fréttablaðið.

Yrðu skýr skilaboð

„Ég hef einhvern tíma nefnt þetta og leikmenn hafa líka gert það í mörg ár en mér er virkilega annt um þetta að þessu sinni. Við verðum að ná að skapa umgjörð sem er nálægt því að vera lík þeirri sem er í lokakeppninni og besta umhverfi sem við getum fengið er fullur völlur hér heima og stuðningurinn sem fylgir því,“ segir Freyr en hæpið er að skapa svipaða stemningu í vináttuleikjunum sem verða svo spilaðir fram að EM.

Að fylla völlinn þegar stelpurnar landa farseðlinum á þriðja Evrópumótið í röð yrði líka meira en bara að segja það að mati Freys.

„Ef við náum að fylla völlinn verður það gríðarlegur innblástur fyrir alla sem koma að liðinu; leikmenn, þjálfara, starfsliðið og allt sambandið. Ég held að fólk átti sig ekki alveg á því að ef þetta tekst þá erum við að senda skýr skilaboð út í heiminn um hversu alvarlega Ísland tekur kvennafótbolta,“ segir Freyr.

Fagnað þennan föstudag

Íslenska liðið er miklu betra en það slóvenska eins og úrslitin ytra sýndu en Freyr segir slóvenska liðið betra en úrslitin gefa til kynna. Stelpurnar okkar spiluðu einfaldlega frábæran leik á móti þeim slóvensku úti. Hann harðbannar allt kæruleysi og vill klára verkefnið með stæl.

„Ég yrði fyrir miklum vonbrigðum ef við nálgumst þennan leik á annan hátt en faglega. Það hefur verið okkar einkenni að nálgast hvern einasta leik með flottu hugarfari. Það kemur ekki til greina að gera þetta með hálfum huga. Við ætlum að bjóða upp á toppleik og góða skemmtun á móti liði sem getur meitt okkur. Það fær bara ekki að gera það. Við ætlum að klára þetta og fagna því saman að vera komin á lokamót,“ segir Freyr.

Harpa út – Dóra inn

Harpa Þorsteinsdóttir, markahæsti leikmaður undankeppninnar, er barnshafandi og var ekki valin. „Það kom ekki til greina að velja hana þótt hún hafi spilað um daginn. Það var bara ekki til umræðu. Við munum fylgjast með meðgöngunni en setjum enga pressu á hana. Við ætlum ekki að vera með einhvern Hörpu-draug vofandi yfir okkur,“ segir Freyr um markaskorarann en Berglind Björg Þorvaldsdóttir fær traustið í hennar stað. Berglind hefur ekki enn skorað fyrir landsliðið.

Dóra María Lárusdóttir snýr aftur í landsliðið eftir tveggja ára fjarveru en hún tók sér ársfrí í fyrra.

„Við erum búin að ræða málin vel. Ég talaði ekkert við hana þegar ég valdi síðasta hóp og það var viljandi. Ég vildi gá hvort ég myndi kveikja í einhverju í hausnum á henni sem það og gerði. Hún var brjáluð yfir því að ég talaði ekki við hana. Eldmóðurinn er til staðar hjá henni sem er gott því við vitum hvað hún er góð í fótbolta,“ segir Freyr Alexandersson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×