Viðskipti innlent

Jafnréttissjónarmið réðu ákvörðun Hildar

Hildur Petersen.
Hildur Petersen. Mynd/E.Ól

Hildur Petersen, fráfarandi stjórnarformaður SPRON, segir jafnréttissjónarmið hafa ráðið því að hún ákvað að gefa ekki kost á sér í stjórn SPRON á ný. Kosið verður um nýja stjórn á aðalfundi sparisjóðsins í dag.

Hildur segir að í þau sextán ár sem hún hafi setið í stjórn SPRON hafi hún verið ötull talsmaður þess að reynt væri að laða að konur til stjórnarsetu í sparisjóðnum. Hafi hún því fyrr í mánuðinum haft fullan hug á að gefa kost á sér á ný. „Ég lít ekki sem svo á að hér sé eingöngu um jafnréttismál að ræða heldur líka hreina viðskiptahagsmuni, því konur og upplýstir karlmenn beina viðskiptum sínum í auknu mæli til þeirra fyrirtækja sem sýna jafnrétti í verki," segir hún.

Hildur segir að skömmu eftir að hún hafi ákveðið þetta hafi tvær af reyndustu konum í íslensku viðskiptalífi, þær Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma, og Rannveig Rist, forstjóri Alcan, verið tilbúnar að gefa kost á sér í stjórnina. „Þar með var ljóst að jafnréttis væri gætt í stjórninni," segir Hildur. „Ég tók því þá ákvörðun þrátt fyrir fyrri ummæli. Eftir að hafa setið samtals 16 ár í stjórn SPRON á tveimur tímabilum gæti ég gengið stolt frá þessu starfi og gefið öðrum tækifæri á að spreyta sig."

Gunnar Þór Gíslason, stjórnarmaður í SPRON, hefur sömuleiðis ákveðið að gefa ekki kost á sér, að því er fram kemur á heimasíðu sparisjóðsins. Þeir Ari Bergmann Einarsson, Ásgeir Baldurs og Erlendur Hjaltason gefa hins vegar áfram kost á sér í stjórnina auk þeirra Margrétar Guðmundsdóttur og Rannveigar Rist.

Stjórn SPRON hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að birta ekki upplýsingar um sölu stjórnarmanna á hlutum í félaginu áður en það fór á markað. Hafa Samtök fjárfesta gagnrýnt svör fyrirtækisins vegna þess. Þar hefur komið fram að SPRON hafi ekki verið heimilt að birta opinberlega upplýsingar um viðskipti stjórnarmanna.

Hildur var í hádegisviðtalinu á Stöð 2 þann 5. febrúar síðastliðinn. Þar var hún spurð um orðróm þess efnis að hún væri á leið úr sæti stjórnarformanns. Þá sagðist Hildur ekki hafa heyrt hann en að hún myndi bjóða sig fram aftur á aðalfundi 27. febrúar. Það væri svo hluthafa að taka ákvörðun um það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×