Lífið

Þetta gerist þegar allar baðsprengjurnar frá Lush eru settar ofan í baðkar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Safiya Nygaard er nokkuð þekkt í YouTube-heiminum. 
Safiya Nygaard er nokkuð þekkt í YouTube-heiminum. 

YouTube-stjarnan Safiya Nygaard er með tæplega níu milljónir fylgjenda á miðlinum.

Hún tekur oft upp á því að sýna frá nokkuð sérstökum tilraunum og að þessu sinni langaði hana að prófa að koma fyrir öllum týpum af svökölluðum baðsprengjum frá Lush ofan í baðkar fullt af vatni.

Baðsprengjur leysast upp og gefa frá sér góðan ilm og getur verið mjög slakandi að hafa eina slíka með sér í bað.

Alls setti hún 46 slíkar sprengjur ofan í baðið en fyrst varð hún að berja þær allar í sundur og blanda þeim saman í eina sprengju með öllum lyktarefnunum saman og var því útkoman nokkuð hressileg eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.