Innlent

Sinu­bruni lagði náttúru­perlu í Grafar­holti í hættu

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Ekki mátti miklu muna að skógurinn í Leirdal í Grafarholti yrði eldinum að bráð.
Ekki mátti miklu muna að skógurinn í Leirdal í Grafarholti yrði eldinum að bráð. Vísir/Jóhann K.

Mikill sinubruni komu upp á grænu svæði í Leirdal í Grafarholti á tólfta tímanum. Var eldurinn það mikill að íbúar í hverfinu flykktust að þegar slökkvilið var á leið á vettvang.

Þórir Steinarsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir að staðan hafi ekki verið góð þegar slökkvilið bar að.

„Hún leit ekki alveg vel út. Það var góður reykur hérna yfir byggðina og svo þegar við komum að þá var allt fullt af trjám þannig að við áttuðum okkur ekkert á því þetta litli út,“ segir Þórir.

Svæðið er miðsvæðis í Grafarholti, í Leirdal þar sem meðal annars Þrettándabrenna hverfisins fer fram. Svæðið stendur austast við golfvöllinn í Grafarholti.

Þórir segir vind hafa verið á svæðinu og að sem betur fer hafi hann ekki verið mikill.

„Það var alveg séns að þetta hefði getað borist hratt yfir. Hér erum við með sinu og nóg af gróðri og trjám, sem vonandi er ekki mikið skemmt,“ segir Þórir.

Um tíma lagði var náttúruperla í Leirdal í Grafarholti í hætti. Ekki þurfti mikið til að eldurinn breiddist út.Vísir/Jóhann K.

Sinubrunar því miður eitt af hefðbundnum vorverkum slökkviliða

Þórir segir að slökkvilið hafi fljótt náð að slá á eldinn. Lítil hætta hafi verið á ferðum en gróður í hættu. Sinubrunar séu því miður eitt af hefðbundnum vorverkum slökkviliða.

„Það fylgir þessu. Þannig að við skulum ekki tala mikið um þetta. En það er búið að vera töluvert síðustu daga,“ segir Þórir.

Útkallið í kvöld er ekki það fyrsta hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Þrír aðrir sinubrunar hafa komið upp á höfuðborgarsvæðinu. Töluverðan mannskap þurfti til að sinna útkallinu í Grafarholti.

„Við komum frá tveimur stöðvum og vorum með tankbíl. Það er mjög erfitt að eiga við svona í gróðrinum. Svo var annar tankbíll á leiðinni frá slökkvistöðinni í Hafnarfirði sem við snerum við þegar við vorum búnir að ná tökum á þessu,“ segir Þórir.

Töluverðan mannskap og tækjabúnað þurfti til þess að ná tökum á eldinum.Vísir/Jóhann K.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×