Í hópi þeirra 32 sem sóttu um stöðu forstjóra Ríkiskaupa á dögunum má finna hina ýmsu sérfræðinga, forstjóra og framkvæmdastjóra auk þess sem fyrrverandi þjóðleikhússtjóri og Alþingismenn sóttu um starfið. Meðal annarra í umsækjendahópnum má nefna fyrrverandi forstjóra Isavia, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sorpu og fyrrverandi mannauðs- og rekstrarstjóra Hafrannsóknarstofnunar. Þá er fyrrverandi ráðherra í einnig í þessum hópi.
Fjármála- og efnahagsráðherra skipar forstjóra Ríkiskaupa til fimm ára en Halldór Ó. Sigurðsson gegnir stöðunni í dag.
Meðal þess sem fram kom þegar starfið var auglýst í apríl var að forstjórinn þyrfti að hafa framtíðarsýn fyrir rekstur og þjónustu ríkisins og frumkvæði og metnað til að hrinda verkefnum í framkvæmd. Umsóknarfrestur rann út 11. maí.
„Viðkomandi mun taka virkan þátt í umbreytingarferli og innleiðingu aðgerða þvert á stofnanir ríkisins ásamt því að stýra stofnuninni og bera ábyrgð á rekstri hennar, þjónustu og árangri,“ eins og segir í auglýsingunni.
Eftirfarandi sóttu um stöðuna:
Ari Matthíasson | Fyrrv. Þjóðleikhússtjóri |
Björgvin Guðni Sigurðsson | Framkvæmdastjóri |
Björgvin Víkingsson | Head of supply chain management |
Björn Hafsteinn Halldórsson | Framkvæmdastjóri |
Björn Óli Ö Hauksson | Verkfræðingur |
Dagmar Sigurðardóttir | Sviðsstjóri |
Einar Birkir Einarsson | Sérfræðingur |
Elvar Steinn Þorkelsson | Framkvæmdastjóri |
Erling Tómasson | Fjármálastjóri |
Eyjólfur Vilberg Gunnarsson | Forstöðumaður |
Guðmundur I Bergþórsson | Sérfræðingur |
Guðrún Pálsdóttir | Fjármálastjóri |
Helgi Steinar Gunnlaugsson | M Sc. í alþjóðasamskiptum |
Hildur Georgsdóttir | Lögmaður |
Hildur Ragnars | Framkvæmdastjóri |
Hlynur Atli Sigurðsson | Framkvæmdastjóri |
Höskuldur Þór Þórhallsson | Lögmaður |
Ingólfur Þórisson | Framkvæmdastjóri |
Jóhann Jóhannsson | Forstöðumaður |
Jón Axel Pétursson | Framkvæmdastjóri |
Jón Garðar Jörundsson | Framkvæmdastjóri |
Ragnar Davíðsson | Sviðstjóri |
Reynir Jónsson | Sérfræðingur |
Sigurður Erlingsson | framkvæmdastjóri |
Sólmundur Már Jónsson | Aðstoðarforstjóri |
Styrkár Jafet Hendriksson | Sérfræðingur |
Sæbjörg María Erlingsdóttir | Framkvæmdarstjóri |
Sæunn Björk Þorkelsdóttir | Forstöðumaður |
Tryggvi Harðarson | Verkfræðingur |
Valdimar Björnsson | Fjármálastjóri |
Þórður Bjarnason | Viðskiptafræðingur |
Þórhallur Hákonarson | Fjármálastjóri |