Innlent

Grunaður um ölvun eftir að hafa ekið utan í slökkvi­bíl

Atli Ísleifsson skrifar
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út að Holtagörðum í gærkvöldi.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út að Holtagörðum í gærkvöldi. Egill

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um umferðaróhapp við Holtagarða um klukkan 23 í gærkvöldi þar sem bíl hafði verið ekið utan í slökkvibíl.

Í dagbók lögreglu segir að ökumaðurinn sé grunaður um ölvun við akstur og hafi verið vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.

Allt tiltækt lið slökkviliðs á höfuðborgarsvæðinu hafði verið kallað út skömmu fyrr eftir að tilkynnt hafði verið um eld í bakaríi Jóa Fel í Holtagörðum. Öryggisvörður hafi hins vegar tekist að slökkva eldinn með handslökkvitæki, en hann hafði komið upp í loftræstikerfi.

Var um minniháttar eld að ræða, en slökkvilið kom á vettvang og tryggði vettvanginn og reykræsti.

Í dagbók lögreglu segir einnig frá því að um klukkan 23 hafi verið tilkynnt um þjófnað úr verslun við Fiskislóð á Granda.

Þá stöðvaði lögregla bíl á öðrum tímanum á Breiðholtsbraut þar sem ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna sem og vörslu fíkniefna.


Tengdar fréttir

Öryggisverðir slökktu eld í bakaríi Jóa Fel

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í Holtagarða í Reykjavík á ellefta tímanum í kvöld. Eldur kom upp í loftræstikerfi í bakaríi Jóa Fel en öryggisvörðum tókst að slökkva hann áður en slökkvilið bar að garði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×