Innlent

Svona var stemningin þegar World Class opnaði aftur á miðnætti

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Svona var umhorfs í World Class Laugum, stuttu eftir að stöðin opnaði á miðnætti.
Svona var umhorfs í World Class Laugum, stuttu eftir að stöðin opnaði á miðnætti. Vísir/Vésteinn

Tilslakanir á samkomubanni vegna kórónuveirufaraldursins tóku gildi nú á miðnætti. Það hefur meðal annars í för með sér hækkun fjöldatakmarkana. Þá verða fjöldatakmarkanir hækkaðar úr 50 í 200. Eins mega krár, skemmtistaðir og sambærilegir staðir hafa opið til klukkan 11 á kvöldin.

Þá máttu líkamsræktarstöðvar opna dyr sínar fyrir hreyfingarþyrstum viðskiptavinum á nýjan leik. Þær hafa verið lokaðar frá 24. mars síðastliðnum, í skugga samkomubannsins sem heilbrigðisráðherra setti á að tillögu sóttvarnalæknis.

Aðstandendur World Class, stærstu líkamsræktarstöðvakeðju Íslands, ákváðu í tilefni afléttinga takmarkana að blása til miðnæturopnunar í stöð sinni í Laugum og bjóða þannig viðskiptavinum sínum að mæta í ræktina eins fljótt og mögulegt var. Mikil stemning myndaðist, boðið var upp á orkudrykki fyrir fyrstu gesti, auk þess sem plötusnúður þeytti skífum fyrir utan stöðina og hélt uppi fjörinu.

Hér að neðan má sjá myndskeið frá opnun stöðvarinnar. Þar má meðal annars sjá Björn Leifsson, eiganda World Class, fylgjast með þeim allra fyrstu sem mættu í ræktina síðan í mars.

Stuttu eftir að hleypt var inn voru allir komnir í rétta fatnaðinn og farnir að leggja rækt við líkama sinn. Ljóst er að margir höfðu beðið óþreyjufullir eftir opnun líkamsræktarstöðva, en blásið var til undirskriftarsöfnunar þann 1. maí, þar sem þess var krafist að líkamsræktarstöðvar myndu opna. Helsta gagnrýni aðstandenda listans á aðferðir stjórnvalda við afléttingar samfélagslegra takmarkana var sú að sundlaugar hefðu fengið að opna viku fyrr en líkamsræktarstöðvar. Alls rituðu 1742 undir listann.

Þá var einnig miðnæturopnun í World Class í Kringlunni. Alls voru tólf sem komu inn fyrstu tíu mínúturnar og óðu flestir beint í bekkpressuna. Starfsmaður á vakt sagðist ekki hafa vitað við hverju mætti búast, en bjóst þó við minna húllumhæi en yrði væntanlega í Laugum. Myndir frá Kringlunni fylgja hér að neðan.

World Class Kringlunni.Vísir/Andri
Ívið færri biðu þess að komast í stöð World Class í Kringlunni.Vísir/Andri

Tengdar fréttir

Miðnæturopnun hjá World Class í Laugum

Líkamsræktarstöðin World Class ætlar að opna dyrnar að stöðvum sínum á miðnætti á sunnudaginn. Þetta kemur fram í færslu World Class á samfélagsmiðlum.

Bjössi í World Class hundfúll

Björn Leifsson, eigandi World Class, var ekki á meðal þeirra sem fagnaði óvæntum tíðindum á daglegum upplýsingafundi Almannavarna í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×