Innlent

Þrír náðust þar sem þeir stálu eggjum undan æðar­kollum

Atli Ísleifsson skrifar
Fugl æðarfugla. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Fugl æðarfugla. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty

Þrír karlmenn voru staðnir að því að stela eggjum undan æðarkollum í varplandinu Stafnesi við Sandgerði fyrr í vikunni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar segir að þegar sá sem stóð þá að verki hafi séð þá hafi þeir verið að ganga um æðavarpið og  allir verið með plastpoka.

„Hann ræddi við þá og sögðust þeir vera að taka myndir og fleira í þeim dúr en harðneituðu að hafa verið að tína egg. Engu að síður voru þrír plastpokar með samtals 135 eggjum, sem enn voru volg, skammt frá bifreið þeirra.

Lögreglan á Suðurnesjum færði mennina á lögreglustöð þar sem þeir höfðu gerst sekir um brot á reglugerð um friðun tiltekinna villtra fugla og friðlýsingu æðavarps,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×