Innlent

Slökkvi­lið kallað út að hóteli í Kefla­vík

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynningin barst Brunavörnum Suðurnesja skömmu eftir hádegi.
Tilkynningin barst Brunavörnum Suðurnesja skömmu eftir hádegi. Vísir/Vilhelm

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja hefur verið kallað út að Marriott-hótelinu á Aðalgötu í Keflavík eftir að tilkynning barst um eld.

Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja hefur bíll verið sendur á vettvang, en ekki liggur fyrir um umfang eldsins.

Tilkynningin barst skömmu eftir hádegi.

Uppfært kl 12:30: Eftir að slökkvilið kom á staðinn var ljóst að um minniháttar mál var að ræða. Segulloki á hitaveitugrind hafi brunnið yfir og því hafi fylgt lykt og reykur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×