Gagnrýna rannsókn á meintu kynferðisbroti nágranna gegn þriggja og sex ára systrum Nadine Guðrún Yaghi skrifar 4. júní 2020 19:00 Stúlkurnar voru við leik við heimili sitt í Reykjavík þegar, að þeirra sögn, maðurinn lokkaði þær inn í íbúð. Vísir/vilhelm
Lögmaður gagnrýnir rannsókn lögreglu á meintu kynferðisbroti gegn þriggja og sex ára systrum. Grunur leikur á að teknar hafi verið kynferðislegar myndir af stúlkunum en málið var látið niður falla eftir rúmlega ár í rannsókn. Fjölskyldan hefur kært málið til ríkissaksóknara. Í mars í fyrra voru stúlkurnar hjá ömmu sinni úti í garði að leika. Þær segja karlmann þá hafa lokkað þær inn til sín í nálæga íbúð í Holtahverfi Reykjavík. „Það er grunur um að hann hafi tekið klámfengnar myndir af að minnsta kosti yngri stelpunni áður en eldri stelpan nær að flýja og bjarga yngri systur sinni út úr þessari íbúð,“ segir Lárus Sigurður Lárusson, lögmaður fjölskyldunnar. Sögðu móður sinni frá næsta dag Hann segir að þær hafi ekki verið lengi inni í íbúðinni og þegar þær fóru aftur til ömmu sinnar hafi þær ekki sagt frá því sem gerðist. Degi síðar hafi þær sagt móður sinni frá atvikinu og það í kjölfarið verið tilkynnt til lögreglu. Rannsóknarlögreglumaður heimsótti þá stúlkurnar og tók af þeim skýrslu. „Þannig það virtist ætla að fara af stað rannsókn þarna strax í kjölfarið en svo gerist ekki neitt,“ segir Lárus. Skýrslutaka í Barnahúsi tveimur mánuðum síðar Tveimur mánuðum síðar eru stúlkurnar boðaðar í skýrslutöku í barnahúsi, en það var eftir að Lárus fór að spyrjast fyrir um rannsókn málsins. „Sú skýrslutaka gengur í raun mjög vel. Þær koma fram og eru samstíga í sínum framburði um stór atriði málsins og það sem gerðist þennan dag,“ segir Lárus. Mánuði síðar óskaði lögreglan eftir því að mæta á vettvang og láta stelpurnar benda á íbúðina.„En eftir það gerist í raun ekki neitt,“ segir Lárus. Foreldrar stúlknanna og hann sjálfur hafi margoft reynt að ná sambandi við lögreglu og spyrjast fyrir um gang rannsóknarinnar. Það hafi verið fátt um svör. „Fyrstu svörin sem við fáum eru í raun á þessu ári þegar við fáum þær upplýsingar að einn maður hafi verið handtekinn en við fáum engar frekari upplýsingar. Næsta sem við fáum að vita í mars á þessu ári er að það sé búið að fella rannsóknina niður,“ segir Lárus. Fundu ekki meintan geranda Hann segir að stúlkurnar hafi gefið greinargóða lýsingu á manninum. Bylgja Hrönn Baldursdóttir, yfirlögregluþjónn hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar segir að ástæða niðurfellingarinnar sé að rannsóknin hafi ekki leitt í ljós hver meintur gerandi er. Tíminn sem leið frá því brotið var kært og þar til stúlkurnar fóru í skýrslutöku í Barnahúsi sé í lengri kantinum en líklega hafi það verið vegna anna í Barnahúsi. Upplifa að stúlkunum hafi ekki verið trúað Stúlkurnar voru ekki boðaðar í fleiri viðtöl hjá Barnahúsi eins og venjan er í svona málum að sögn Lárusar. Með tímanum hafi þær þó farið að tjá sig meira um málið við foreldra sína og sagt þeim að mennirnir hafi verið tveir. „Af því að þær fengu ekki þessi viðtöl hafa þessar upplýsingar ekki ratað til lögreglunnar,“ segir Lárus. „Og þá höfum við átt mjög erfitt með að fá samband við rannsakendur.“ Lárus segir að málið hafi tekið gríðarlega á fjölskylduna. „Þeirra upplifun er að stúlkunum hafi ekki verið trúað,“ segir Lárus. Miklar mannaferðir í íbúðinni Hann telur að lögregla hefði átt að nýta sér hve stutt var frá brotunum þar til stúlkurnar sögðu frá. „Samt sem áður líða tveir mánuðir þar til þolendur eru teknir í viðtal og eiginleg rannsókn fer af stað. Maður hefði haldið að í svona máli þar sem er grunur um að það séu teknar klámfengnar myndir af börnum þá skipti hver dagur máli í að reyna hafa hendur í hári mannsins og þá reyna að koma í veg fyrir dreifingu á mögulegu efni,“ segir Lárus. Fjölskyldan hefur kært niðurfellingu málsins til ríkissaksóknara. „Okkur hafa borist upplýsingar um að það sé töluvert af mannaferðum tiltekinna manna í þessa íbúð sem passar við mögulega lýsingu sem stúlkurnar gáfu af manninum,“ segir Lárus.
Kynferðisofbeldi Lögreglumál Mest lesið Segir gömlu sambandi Kanada við Bandaríkin lokið Erlent Skatturinn snýr sér að íþróttafélögum og samfélagið titrar Innlent Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun Erlent Lagður inn á sjúkrahús vegna aukaverkana krabbameinsmeðferðar Erlent Ísraelar kvörtuðu yfir „Signalgate“ Erlent Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Erlent Skipulagðir glæpahópar njósni fyrir erlend ríki Innlent Sólmyrkvi á laugardaginn Innlent Minnist móður sinnar sem lést í morgun Innlent Kjartan Már aftur í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvi á laugardaginn Harmsögur af stríði, fjöldagrafir og tíðar árásir taka á líkama og sál Skatturinn snýr sér að íþróttafélögum og samfélagið titrar Skipulagðir glæpahópar njósni fyrir erlend ríki Sigaði löggunni á blaðbera Gengur þreyttur en stoltur frá borði „Þetta er yfirþyrmandi tilfinning“ Blöskranleg greiðsla, nýr rektor og partí fyrir kvöldsvæfa Ekki hægt að segja félagslega kjörnum formanni upp Úrslit kjörs til rektors Háskóla Íslands kynnt Kjartan Már aftur í veikindaleyfi Upphæðin kom Þórarni í opna skjöldu Treystir því að stjórnvöld setji ekki fólk á götuna Óboðin ungmenni hótuðu börnum á skólatíma við Seljaskóla Vildi afnema reglur um formann en fær tíu mánaða biðlaun Samgöngustofa gefur grænt ljós á flugbrautina Fréttastjóra RÚV blöskrar ófrægingarherferð vegna fréttaflutnings Bannað að heita Gríndal og Illuminati Njósnahópar hafi stóraukið virkni sína á Íslandi Umsagnir íbúa fjarlægðar úr skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Njósnir Kínverja á Íslandi viðkvæmt mál sem nauðsynlegt sé að ræða Ekki við stjórn Sameykis að sakast og fátt annað í stöðunni Segir ekkert eðlilegt við starfslokasamning Sameykis Barnavernd með í för þegar lögregla stöðvaði ræktun í Mosfellsbæ Minnist móður sinnar sem lést í morgun Sólveig Anna segir sjálftöku Þórarins skefjalausa Nýbakaðir foreldrar sjúkir í nafnið Aþenu Kynna nýjan rektor í dag að loknu kjöri Fjarlægja plasthanska af dælum og gefa fjölnota í staðinn Öflugir Austfirðingar spara borginni hundruð milljóna Sjá meira