Innlent

Fleiri en þúsund nú í sóttkví en ekkert nýtt smit

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða í vetur.
Frá skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða í vetur. Vísir/Vilhelm

Áfram fjölgar lítillega fólki í sóttkví vegna kórónuveirunnar á milli daga. Fjöldinn er nú yfir þúsund manns og hafa rúmlega tvö hundruð bæst við á undanförnum þremur sólarhringum. Ekkert nýtt smit greinist þó, sjötta daginn í röð, samkvæmt upplýsingum landlæknis og almannavarna.

Aðeins einstaka smit hafa greinst undanfarnar vikur og eru staðfest smit enn 1.806 frá upphafi faraldursins. Einungis tvö virkt smit er í landinu þessa stundina og enginn liggur á sjúkrahúsi. Alls hafa nú verið tekin 62.230 sýni frá upphafi faraldursins.

Til þessa hafa 1.794 náð bata og hefur fjöldinn verið óbreyttur undanfarna daga. Fólk í sóttkví er nú 1.023 og hefur fjölgað um 205 undanfarna þrjá sólarhringa. Alls hafa 21.089 lokið sóttkví frá upphafi faraldursins.

Tíu hafa látist af völdum úr veirunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×