Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2

Andri Eysteinsson skrifar

Kórónuveirufaraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á starfsemi Vogs. Fækka þurfti plássum á sjúkrahúsinu um helming á meðan á samkomubanni stóð og vegna erfiðleika við fjármögnun verður starfsemin skert út árið. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Í fréttatímanum verður einnig ítarleg fréttaskýring um langa sögu réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum, fjallað verður um ferðasumarið á Íslandi og rætt við starfsmann í vegasjoppu sem segir síðustu mánuði hafa verið ansi einmanalega á vaktinni. Að auki verður fjallað um óvenjulegan sjómannadag, engin dagskrá var í Reykjavík en þó einhver dagskrá í minni byggðum.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis kl. 18:30




Fleiri fréttir

Sjá meira


×