Viðskipti innlent

Guðrún ráðin til VR

Atli Ísleifsson skrifar
Guðrún Johnsen.
Guðrún Johnsen. VR

Guðrún Johnsen hagfræðingur hefur verið ráðin í hlutastarf sem efnahagsráðgjafi VR.

Í tilkynningu frá félaginu segir að Guðrún verði formanni, framkvæmdastjóra og stjórn til ráðgjafar í rannsóknum og stefnumótun tengdum kjaramálum. Guðrún hefur setið í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fyrir hönd VR frá því í ágúst 2019.

„Guðrún á að baki um 20 ára feril sem háskólakennari við HÍ, HR, og Oslóarháskóla og sem rannsakandi á sviði fjármála og efnahagsmála hjá alþjóðlegum stofnunum. Hún hefur lokið doktorsprófi í hagfræði frá ENS í Frakklandi og meistaragráðum í bæði tölfræði og hagnýtri hagfræði frá University of Michigan. Hún er ein fárra hagfræðinga sem frá árinu 2005 varaði við skuldakreppunni miklu sem raungerðist árið 2008 og frá 2009-2010 starfaði Guðrún hjá Rannsóknarnefnd Alþingis, en eftir hana liggja margar greinar, bókarkaflar og bók um fjármálakreppuna miklu.

Eftir bankahrunið kom hún að endurreisn íslenska bankakerfisins, sem varaformaður stjórnar Arion banka í tæplega átta ár. Frá 2014 hefur Guðrún varið frítíma sínum m.a. í uppfræðslu og vitundarvakningu meðal almennings um áhrif spillingar í viðskiptalífi og stjórnmálum,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×