Viðskipti innlent

Sigurður Ingvar til KORTA

Atli Ísleifsson skrifar
Sigurður Ingvar Ámundason.
Sigurður Ingvar Ámundason. korta

Sigurður Ingvar Ámundason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs KORTA.

Í tilkynningu kemur fram að Sigurður taki við starfinu af Sigtryggi Árnasyni sem hafi ákveðið að horfa til annarra starfa.

„Sigurður er með mikla reynslu af störfum í færsluhirðingu en hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri Rekstrar- og þróunarsviðs hjá Valitor. Sigurður er með B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×