Innlent

Enginn greindist síðasta sólarhringinn

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða.
Skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða. Vísir/Vilhelm

Enn eru þrjú virk kórónuveirusmit hér á landi en ekkert nýtt smit greindist milli daga. Nýtt smit greindist síðast á föstudag.

Samkvæmt tölum á covid.is voru 68 sýni tekin síðasta sólarhringinn. Af þeim voru 32 tekin hjá Íslenskri erfðagreiningu en 36 á veirufræðideild Landspítalans

Heildartala þeirra sem greinst hafa með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 sjúkdómnum hér á landi er því enn 1807. 1.794 hafa náð bata en enginn liggur á sjúkrahúsi vegna veirunnar. Í sóttkví eru nú 803, líkt og í gær.

Þá hafa 21.347 manns lokið sóttkví. Alls hafa 62.870 sýni verið tekin hér á landi.

Tíu hafa látist af völdum Covid-19 hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×