Innlent

Segja hvern dag færa margar ferða­skrif­stofur nær gjald­­þroti

Sylvía Hall skrifar
Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Arnar

Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau gagnrýna yfirvöld og segja það vonbrigði að Alþingi og ríkisstjórn komi ekki til móts við vanda ferðaskrifstofa. Það sé nauðsynlegt fyrir bæði neytendur og ferðaþjónustufyrirtæki að leysa þann vanda sem blasir við mörgum aðilum í ferðaþjónustu.

Í yfirlýsingunni er vísað til þess að lögum samkvæmt er ferðaskrifstofum skylt að endurgreiða neytendum innan 14 daga vegna ferðar sem fellur niður sé gerð krafa um slíkt. Þær séu eini hlekkur ferðaþjónustunnar sem er bundinn af slíkri skyldu um endurgreiðslu og eins og staðan er nú geta margar þeirra ekki staðið undir því að endurgreiða sínum viðskiptavinum.

Frumvarp Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur ferðamálaráðherra um heimild ferðaskrifstofa til þess að afhenda inneign vegna pakkaferða í stað endurgreiðslu liggur nú inn í nefnd en í síðustu viku sagðist ráðherrann ekki bjartsýn á að frumvarpið yrði samþykkt.

Samtökin segja löggjöfina sem nú er í gildi ekki taka á aðstæðum eins og þeim sem eru uppi núna og forsendur hennar því brostnar, enda eigi mörg fyrirtæki ekki lausafé til þess að endurgreiða. Evrópusambandið hefur hafnað hugmyndum á borð við þær að ferðaskrifstofum verði heimilt að endurgreiða með inneignarnótu en samtökin segja nauðsynlegt að grípa til sértækra aðgerða.

„Fjölmörg Evrópuríki hafa gripið til aðgerða vegna vandans á þeim grundvelli. Margar þeirra aðgerða brjóta í bága við Evrópulöggjöfina, enda um fordæmalausar aðstæður að ræða sem löggjöfin nær ekki utan um.“

Samtökin segjast hafa átt í stöðugum samskiptum við stjórnvöld undanfarnar tíu vikur og lagt fram tillögur að mismunandi aðgerðum, sem séu útfærðar með hliðsjón af aðgerðum annarra Evrópuríkja. Engin fullkomin lausn sé í boði en samtökin hafi einnig átt í samskiptum við Neytendasamtökin og fundið þar fyrir samhljómi um mikilvægi lausnar á vandanum.

„Ljóst er að eftir þrjá mánuði er tíminn til aðgerða nú á þrotum, lögsóknir gegn ferðaskrifstofum eru hafnar að fullum þunga og ljóst að hver dagur færir einstök fyrirtæki nú nær rekstrarstöðvun eða gjaldþroti.“


Tengdar fréttir

ESB: Endur­greiða skuli pakka­ferðir til við­skipta­vina

Stofnanir ESB hafa hafnað hugmyndum um að ferðaskrifstofum verði heimilt að afhenda viðskiptavinum sínum inneign vegna pakkaferða sem aldrei urðu farnar vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Viðskiptavinir skulu eiga rétt á að fá ferðina endurgreidda.

Gjaldþrot blasir við fjölda ferðaskrifstofa

Gjaldþrot blasir við stórum hluta þeirra rúmlega þrjúhundruð ferðaskrifstofa sem starfa í landinu vegna algers tekjuhruns. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir enga lausn blasa við sem komi bæði til móts við ferðaskrifstofur og viðskiptavini þeirra.

Ó­sam­mála því að réttindi neyt­enda séu ekki tryggð í nýju frum­varpi

Frumvörp vegna nýjustu aðgerða ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins voru samþykkt í ríkisstjórn á föstudaginn og koma til kasta þingsins eftir helgi. Umdeildasta ráðstöfunin er að ferðaskrifstofum verði heimilt að gefa út inneignarnótur í stað þess að endurgreiða ferðir sem ekki hafa verið farnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×