PlayStation 5 kemur á markað í ár Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. júní 2020 23:38 PlayStation 5 kemur á markað síðar á þessu ári. Sony
Sony birti í dag útlit nýrrar leikjatölvu, PlayStation 5, sem verður komin á markað síðla þessa árs. Útlit tölvunnar var afhjúpað í kynningu sem Sony streymdi í beinni útsendingu þar sem nýir leikir voru kynntir sem gerðir eru sérstaklega fyrir tölvuna. Tvær útgáfur verða af leikjatölvunni, önnur verður „hefðbundin“ PS5 tölva (e. standard PlayStation 5) og hin verður „stafræn útgáfa af PlayStation 5“ (e. PlayStation 5 Digital Edition) sem mun ekki innihalda diskalesara (e. discreader). Samkvæmt fréttastofu CNBC gefur það til kynna að tölvan mun aðeins hafa harðan disk sem mun geyma leikina og gæti þar með kostað minna en hin útgáfa tölvunnar. Sony gaf ekki upp hvað tölvurnar myndu kosta eða nákvæmlega hvenær þær færu á markað en það yrði á síðari hluta þessa árs. Þá gaf Sony það út að nokkrir hlutir myndu fylgja með PS5 tölvunni, þar á meðal þráðlaus heyrnartól með þrívíddarhljóði, hágæða myndavél svo að leikjaspilarar gætu streymt því þegar þeir væru að spila. Þá myndi fylgja sérstök fjarstýring til að nota með tölvunni og hleðslutæki fyrir fjarstýringarnar. Sony gaf ekki út hvað fylgihlutirnir myndi kosta né hvenær þeir færu á markað en talið er líklegt að það verði um svipað leyti og tölvan sjálf. Þá gaf Sony einnig út lista af tölvuleikjum fyrir tölvuna sem gefnir verða út á þessu og næsta ári. Eftirfarandi leikir voru kynntir af Sony í dag: Astro’s Playroom (Japan Studio) Demon’s Souls (Bluepoint Games / Japan Studio) Destruction All Stars (Lucid Games / XDEV) Gran Turismo 7 (Polyphony Digital) Horizon Forbidden West (Guerrilla Games) Marvel’s Spider-Man Miles Morales (Insomniac Games) Ratchet & Clank: Rift Apart (Insomniac Games) Returnal (Housemarque / XDEV) Sackboy A Big Adventure (Sumo Digital / XDEV) Bugsnax (Young Horses) DEATHLOOP (Bethesda) Ghostwire™: Tokyo (Bethesda) Godfall™ (Gearbox Publishing / Counterplay Games) Goodbye Volcano High (KO-OP) Grand Theft Auto V and Grand Theft Auto Online (Rockstar Games) HITMAN 3 (IO Interactive) JETT : The Far Shore® (Superbrothers) Kena: Bridge of the Spirits (Ember Lab) Little Devil Inside (Neostream Interactive) NBA 2K21 (2K, Visual Concepts) Oddworld Soulstorm™ (Oddworld Inhabitants™) Pragmata (Capcom) Project Athia* (Square Enix/Luminous Productions) Resident Evil™ Village (Capcom) Solar Ash (Annapurna Interactive / Heart Machine) Stray (Annapurna / Blue Twelve Studio) Tribes of Midgard (Gearbox Publishing / Norsfell) The Pathless (Annapurna Interactive / Giant Squid)
Leikjavísir Sony Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Kjarnorkubréf Einsteins til sölu Nvidia verðmætasta skráða fyrirtæki heims Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Sjá meira