Alfreð lék hálftíma í naumum útisigri

Alfreð er að komast í gang aftur eftir erfið meiðsli.
Alfreð er að komast í gang aftur eftir erfið meiðsli. Vísir/Getty

Augsburg vann frábæran 1-0 útisigur á Mainz 05 í miklum fallbaráttuslag í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason lék síðasta hálftímann.

Leikurinn í dag var mikill fallbaráttuslagur en bæði lið þurftu á sigri að halda til að koma sér frá fallsvæðinu. Alfreð hóf leikinn á varamannabekk Augsburg en hann er að komast í gang eftir erfið meiðsli.

Gestirnir byrjuðu leikinn frábærlega en Florian Niederlechner kom þeim yfir strax á fyrstu mínútu. Reyndist það eina mark leiksins og sigurinn gífurlega mikilvægur fyrir Augsburg sem er nú í 13. sæti deildarinnar með 35 stig, sjö stigum frá fallsæti, þegar þrjár umferðir eru eftir.

Alfreð kom inn af varamannabekknum á 62. mínútu leiksins og hjálpaði Augsburg að sigla stigunum heim. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira