Víti á síðustu stundu tryggði tíu mönnum Levante stig í Valencia Sindri Sverrisson skrifar 12. júní 2020 22:13 Goncalo Guedes og félagar fengu bara eitt stig í kvöld. VÍSIR/GETTY
Það var mikil dramatík í lokin á leik Valencia og Levante sem skildu jöfn, 1-1, í spænsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Granada vann Getafe, 2-1. Ekkert mark var skorað í Valencia fyrr en að komið var fram á 89. mínútu. Levante hafði misst Roger af velli með rautt spjald korteri áður og Valencia virtist því með pálmann í höndunum þegar Rodrigo skoraði eftir fyrirgjöf José Luis Gaya. Tíu leikmenn Levante náðu hins vegar að jafna metin, þegar Gonzalo Melero skoraði úr vítaspyrnu eftir að myndbandsdómgæsla leiddi til þess að víti var dæmt seint í uppbótartímanum. Brotið átti sér stað á vítateigslínunni og það tók drykklanga stund fyrir dómarann að ákveða sig. Granada lenti undir gegn Getafe en jafnaði metin með sjálfsmarki og Carlos Fernández skoraði svo sigurmarkið á 79. mínútu. Getafe varð því af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti en liðið er í 5. sæti með 46 stig. Valencia er í 7. sæti með 43 stig, en liðin í 5.-6. sæti komast í Evrópudeildina. Granada hefur blandað sér í baráttuna um þau sæti og er með 41 stig í 8. sæti.
Spænski boltinn Mest lesið Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Í beinni: Celta Vigo - Barcelona | Börsungar vilja svara fyrir tapið síðast Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Sjá meira