Fótbolti

Guðlaugur Victor lék allan leikinn í dramatískum sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Guðlaugur Victor í leik með Darmstadt á leiktíðinni.
Guðlaugur Victor í leik með Darmstadt á leiktíðinni. VÍSIR/GETTY

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn í dramatískum 3-2 sigri Darmstadt 98 á Hannover 96 í þýsku B-deildinni í dag. Sigurmarkið kom í uppbótartíma leiksins.

Heimamenn í Darmstadt byrjuðu leikinn betur og kom Serdar Dursun þeim yfir um miðbik fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik snéru gestirnir taflinu sér í vil með mörkum frá Edgar Prib og Marvin Ducksch. 

Staðan því orðin 2-1 Hannover í vil þegar tæpur klukkutími var liðinn. Jöfnunarmark Darmstadt kom þó skömmu síðar og það var svo í uppbótartíma þegar Patrick Pfeiffer tryggði heimamönnum stigin þrjú.

Darmstadt heldur í vonina um að komast í umspil um sæti í þýsku úrvalsdeildinni. Liðið er sem stendur með 46 stig í 5. sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Mikið þarf þó að gerast til að liðið nái þriðja sætinu af Stuttgart.

Guðlaugur lék allan leikinn á miðri miðju Darmstadt í 3-5-2 leikkerfi liðsins í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×