Tveir greindust með Covid-19 við komuna til landsins í gær af rúmlega níu hundruð manns sem fóru í sýnatöku. Þá greindist lögreglumaður með veiruna. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, hefur mestar áhyggjur af því að Íslendingar beri veiruna til landsins eins og í upphafi faraldursins, en nánar verður fjallað um þetta í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.
Í fréttatímanum kynnum við okkur líka átök í borgarstjórn vegna uppbyggingar í Skerjafirði og hugmyndir um Keflavíkurflugvöll sem mikilvæga rafhleðslustöð fyrir rafknúnar flugvélar.
Þá hittum við fulltrúa Snjódrífanna, ellefu kvenna sem slógu met þegar þær þveruðu Vatnajökul á átta dögum og söfnuðu um leið milljónum króna til góðgerðarmála.
Þetta og margt fleira í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18.30