Innlent

Lagði blóm­sveig að leiði Bríetar Bjarn­héðins­dóttur í til­efni Kven­réttinda­dagsins

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Jóhann K. Jóhannsson skrifa
Pawel Bartoszek forseti borgarstjórnar lagði blómsveig að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur kvennréttindakonu í Hólavallakirkjugarði í morgun.
Pawel Bartoszek forseti borgarstjórnar lagði blómsveig að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur kvennréttindakonu í Hólavallakirkjugarði í morgun. Vísir/Friðrik

Baráttudagur íslenskra kvenna er í dag og í tilefni dagsins lagði Pawel Bartoszek, forseti borgarstjórnar, blómsveig að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í Hólavallakirkjugarði í morgun.

Bríet átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla þannig lýðræðissamfélagið í heild sinni. Hún var stofnandi Kvenréttindafélags Íslands og var fyrsti formaður þess og allt til ársins 1928.

Markmið félagsins var að stuðla að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×