Erlent

Komst að væntan­legri af­sögn sinni í ­til­kynningu dóms­mála­ráðu­neytisins

Sylvía Hall skrifar
Geofrrey Berman hefur verið saksóknari í New York frá því í janúar 2018.
Geofrrey Berman hefur verið saksóknari í New York frá því í janúar 2018. Vísir/Getty

Geoffrey Berman, saksóknari í New York, segist ekki vera að stíga til hliðar þrátt fyrir fréttatilkynningu þess efnis frá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Í tilkynningu frá Berman segist hann ekki hafa í hyggju að segja af sér og að hann muni ekki gera það fyrr en annar maður verði tilnefndur í starfið af forseta líkt og lög kveða á um.

Berman komst að væntanlegri afsögn sinni þegar hann sjálfur sá fréttatilkynningu sem dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, William Barr, sendi frá sér á föstudagskvöld. Engar skýringar fylgdu tilkynningunni heldur kom aðeins fram að saksóknarinn myndi stíga til hliðar og að Jay Clayton myndi taka við. Þá var honum þakkað fyrir störf sín og sagður hafa staðið sig vel frá því hann tók við í janúar árið 2018.

Berman segir allar rannsóknir á hans borði því vera enn í vinnslu, en hann hefur rannsakað þónokkur mál sem tengjast Donald Trump Bandaríkjaforseta. Á vef BBC segir að hann hafi meðal annars rannsakað Michael Cohen, fyrrum lögmann Trump, sem var dæmdur fyrir fjársvik í tengslum við kosningabaráttu forsetans og fyrir það að hafa logið að þinginu.

Þá hefur hann einnig verið að rannsaka Rudy Giuliani, núverandi lögmann forsetans.

Á meðal helstu mála sem nú eru til rannsóknar hjá Berman er mál Jeffrey Epstein og meint kynferðisbrot hans. Verandi saksóknari í málinu hefur hann leitt rannsóknina, og meðal annars gefið það út að Andrés prins hafi verið sérstaklega ósamvinnuþýður þrátt fyrir yfirlýsingar um annað.

Berman sagði Andrés ítrekað hafa neitað að mæta í viðtal en ef honum væri alvara með að sýna samvinnuvilja stæðu dyr hans ávallt opnar.

Tímasetningin þykir undarleg 

Í yfirlýsingu dómsmálaráðuneytisins segir að forsetinn muni tilnefna Jay Clayton, formann öryggis- og viðskiptanefndar ríkisstjórnarinnar, en sá hefur aldrei sinnt starfi saksóknara áður. Berman segist ætla að sinna starfi sínu og rannsóknum þar til sú tilnefning hefur farið í gegn samkvæmt lögum.

Málið hefur vakið furðu margra og sagði Preet Bharara, forveri Berman í starfi, tímasetninguna undarlega í ljósi þess að aðeins fimm mánuðir væru til kosninga. Í ofanálag hafði Trump sjálfur valið Berman í starfið í janúar 2018 þegar hann rak Bharara.

„Af hverju myndi forseti losa sig við sinn eigin saksóknara í suðurhluta New York á föstudagskvöldi, aðeins fimm mánuðum fyrir kosningar?“ skrifaði Bharara á Twitter-síðu sína.


Tengdar fréttir

Segir að allt sem Trump geri snúist um endurkjör

John Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Donald Trump Bandaríkjaforseta segir að fyrrverandi yfirmaður sinn sé „ótrúlega fáfróður“ og hafi hvorki getu né færni til þess að sinna starfi forsetans. Bolton segir að eina leiðarljós Trump í ákvörðunum sé möguleikinn á endurkjöri.

Dómsmálaráðherrann talinn hafa veitt Flynn sérmeðferð

Fyrrverandi alríkisdómari sem var fenginn til þess að gefa álit á óvæntri ákvörðun bandaríska dómsmálaráðuneytisins að draga til baka ákærur á hendur Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Donalds Trump forseta, telur ráðuneytið sekt um stórfellda misbeitingu valds. Dómsmálaráðherrann hafi veitt bandamanni Trump sérmeðferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×