Sport

Dagskráin í dag: Breiðablik fer í Lautarferð, Stjarnan heimsækir Fjölnismenn og Inter og Atalanta mæta aftur til leiks

Ísak Hallmundarson skrifar
Blikar eru í efsta sæti eftir sigur á Gróttu, ná þeir að halda áfram á sigurbraut í dag?
Blikar eru í efsta sæti eftir sigur á Gróttu, ná þeir að halda áfram á sigurbraut í dag? vísir/bára

Það eru leikir í Pepsi Max deild karla, spænska og ítalska boltanum á dagskránni á sportrásum Stöðvar 2 í dag auk þess sem keppni heldur áfram á PGA-mótaröðinni í golfi.

Tveir leikir eru á dagskrá í Pepsi Max deildinni. Nýliðar Fjölnis taka á móti Stjörnunni í Grafarvoginum og hefst bein útsending kl. 16:30 á Stöð 2 Sport. Kl. 18:50 hefst svo bein útsending frá leik Fylkis og Breiðabliks, sem fer fram í Lautinni, heimavelli Fylkis. Breiðablik er enn í efsta sæti eftir fyrstu umferð en Fylkir er án stiga eftir tap gegn Stjörnunni. Kl. 21:15 hefjast svo Pepsi Max tilþrifin, þar sem farið er yfir helstu tilþrif helgarinnar.

Einn leikur fer fram í ensku B-deildinni, leikur Cardiff og Leeds, og er hann sýndur á Stöð 2 Sport 2 kl. 10:50.

Tveir leikir fara fram í ítalska boltanum sem er nú loksins hafinn aftur eftir hlé. Fyrst mætast hið bráðskemmtilega lið Atalanta og Sassuolo kl. 17.20 og kl. 19:35 mætast Inter og Sampdoria, en báðir þessir leikir eru í beinni á Stöð 2 Sport 3.

Real Sociedad og Real Madrid mætast í spænsku úrvalsdeildinni og hefst bein útsending frá þeim leik á Stöð 2 Sport 2 kl. 19:50.

Lokadagur RBC Heritage mótsins á PGA-mótaröðinni í golfi verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Golf, en mikil spenna ríkir fyrir lokahringnum þar sem fjórir kylfingar eru jafnir í efsta sæti. Bein útsending frá mótinu hefst kl. 17:00.

Hér má sjá alla dagskránna á sportrásum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×