Innlent

Undir áhrifum á ótryggðum bíl og án bílprófs

Samúel Karl Ólason skrifar
Annar ökumaður sem lögreglan stöðvaði hafði aldrei fengið bílpróf.
Annar ökumaður sem lögreglan stöðvaði hafði aldrei fengið bílpróf. Vísir/vilhelm

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni ökumann sem var „með alla hluti í ólagi,“ samkvæmt tilkynningu. Maðurinn var ekki með bílpróf, á ótryggðum bíl og var þar að auki grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Annar ökumaður sem lögreglan stöðvaði hafði aldrei fengið bílpróf.

Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæminu en sá sem hraðast ók var á 134 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 90. Þar að auki urðu nokkuð umferðaróhöpp í umdæminu en engin slys á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×