Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman fagnaði línu sinni Cheer Up! á HönnunarMars um helgina og var fullt út úr dyrum í versluninni.
„Línan sjálf er unnin um vetur. Við vorum því að hlusta mikið á alls konar suðræna tónlist, því að það var erfitt að vera að gera hressa sumarlínu í öllum appelsínugulu viðvörunum. Maður þurfti aðeins að setja sig í stellingar, að búa til einhvern suðrænan heim á vinnustofunni. Við vorum með rosalega mikið af blómum í kringum okkur á vinnustofunni,“ sagði hönnuðurinn á dögunum í viðtali hér á Vísi.
„Ég hlustaði mikið á diskó við hönnunina. Ég nota alltaf tónlist þegar ég er að hanna og það hjálpar mér mjög mikið. Það setur mann í stellingar og kemur manni í einhvern ákveðinn heim. í „Cheer up!“ erum að gera rosalega mikið af nýjum sniðum og vinna með mikið af nýjum efnum. Við höfum ekki verið að vinna með „mesh“ efni áður sem eru þá þunnt teygjanlegt efni, þú getur verið í undirkjól eða buxum og bol innan undir. Þetta er litrík lína og við höldum áfram að vera með snið sem ýta undir hið kvenlega form. Svo gerum við alltaf handgert skart með sem okkur finnst setja punktinn yfir i-ið.“
Hildur hannaði sérstaka djammtoppa úr afgangsefnum sem seldir voru til styrktar UN Women.
„Bolirnir seldust allir upp á hönnunarmars og söfnuðust rúmlega 400 þúsund krónur fyrir konur á flótta,“ segir Hildur í samtali við Vísi.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir frá HönnunarMars í Yeoman á Skólavörðustíg 22.