Helstu andstæðingum Lúkasjenkó meinað að bjóða sig fram Andri Eysteinsson skrifar 14. júlí 2020 23:58 Frá mótmælum sem efnt var til eftir að Babaríkó var handtekinn. Getty/NurPhoto
Mótmæli hafa brotist út í hvítrússnesku höfuðborginni Mínsk eftir að helstu andstæðingum sitjandi forseta var meinað að bjóða sig fram í forsetakosningum ársins. Kjörstjórn í Hvíta-Rússlandi hefur hafnað framboðum helstu andstæðinga Alexanders Lúkasjenkó forseta en forsetakosningar eru áætlaðar í næsta mánuði. Þeir Valerí Tsjepkaló og Viktor Babaríkó höfðu hug á því að binda endi á tuttugu og sex ára valdatíð Alexanders Lúkasjenkó sem verður að öllu líkindum endurkjörinn í embættið sem hann hefur gegnt frá árinu 1994. Eftir að niðurstaða kjörstjórnar var tilkynnt brutust út mótmæli víða um Hvíta-Rússland sem fóru að mestu friðsamlega fram. Þrjátíu og fimm mótmælendur voru þó handteknir í Mínsk en einnig var mótmælt í Grodno, Gomel og í Brest. Framboði Tsjepkaló, sem er fyrrum sendiherra Hvíta-Rússlands í Bandaríkjunum var hafnað eftir að hann náði ekki að safna tilskyldum fjölda undirskrifta en Babaríkó var meinað að taka þátt vegna sakamáls sem höfðað hefur verið á hendur honum. Babaríkó var handtekinn í júní grunaður um peningaþvætti en forseti Evrópuráðsins, Ursula von der Leyen hefur sagst telja að Babaríkó hafi verið handtekinn af undirlagi yfirvalda. Kosningarnar verða haldnar 9. ágúst og eru alls fimm í framboði.
Hvíta-Rússland Mest lesið Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent Guðmundur Elís í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Erlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar fylgjast með Innlent Klámáhorf barna enn að dragast saman Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Sjá meira