Viðskipti erlent

Apple þarf ekki að greiða milljarða í skatta á Írlandi

Kjartan Kjartansson skrifar
Skattaskuldin sem framkvæmdastjórn skikkaði Apple til að greiða var liður í tilraunum þess til að koma í veg fyrir skattaundanskot stórra alþjóðlegra fyrirtækja.
Skattaskuldin sem framkvæmdastjórn skikkaði Apple til að greiða var liður í tilraunum þess til að koma í veg fyrir skattaundanskot stórra alþjóðlegra fyrirtækja. Vísir/EPA

Almenni dómstóll Evrópusambandsins ógilti í dag ákvörðun framkvæmdastjórnar sambandsins sem skikkaði tæknifyrirtækið Apple til að greiða þrettán milljarða evra, jafnvirði um 2.080 milljarða íslenskra króna, í skattaskuld á Írlandi. Ákvörðunin var liður í tilraunum sambandsins til þess að vinda ofan af samningum við alþjóðleg fyrirtæki gerðu við sum Evrópulönd um að greiða litla sem enga skatta.

Dómararnir í málinu töldu ekki sýnt fram á að Apple hefði fengið samkeppnislegt forskot með samkomulagi sínu við írsk stjórnvöld samkvæmt evrópskum samkeppnislögum, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar.

Apple áfrýjaði ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar frá árinu 2016. Breska ríkisútvarpið BBC segir að niðurstaða næstæðsta dómstóls Evrópu sé áfall fyrir Evrópusambandið og tilraunir þess til að stemma stigu við skattaundanskotum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×