Inter komst ekki upp í 2. sæti | Birkir og félagar fallnir Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. júlí 2020 21:45 Brescia minnkaði muninn um leið og Birkir kom inn á en það dugði ekki til. Maurizio Lagana/Getty Images Alls fóru sex leikir fram í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Inter Milan gerði markalaust jafntefli við Fiorentina á heimavelli, Roma vann stórsigur á SPAL og þá töpuðu Birkir Bjarnason og félagar í Brescia 3-1 gegn Lecce og eru þar með fallnir. Inter hefði með sigri komist aftur upp í annað sæti deildarinnar en jafntefli þýðir að liðið er stigi á eftir Atalanta þegar þrjár umferðir eru eftir. Roma vann 6-1 útisigur á SPAL en Rómverjar sitja samt sem fastast í 5. sæti deildarinnar. Lecce og Brescia mættust í sannkölluðum botnslag. Bæði lið í fallsæti fyrir leik og þó svo að þau séu það enn eftir leiki kvöldsins er ljóst að Birkir Bjarnason og samherjar hans eru fallnir niðri í Serie B eftir 3-1 tap í kvöld. Birkir spilaði síðustu þrjátíu mínútur leiksins. Úrslit kvöldsins Lecce 3-1 BresciaSampdoria 1-2 GenoaTorino 1-1 Hellas VeronaSPAL 1-6 RomaInter Milan 0-0 Fiorentina Ítalski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti