Donald Trump Bandaríkjaforseti bað sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi um að kanna hvort að breska ríkisstjórnin gæti komið því til leiðar að golfklúbbur hans í Skotlandi fengi að halda eitt stærsta golfmót í heimi. Sendiherrann er sagður hafa tekið máli upp við breskan ráðherra.
New York Times segir að Robert Wood Johnson IV, sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi, hafi tjáð fjölda samstarfsmanna sinna í febrúar árið 2018 að Trump hefði beðið sig um að kanna möguleikann á að bresk stjórnvöld gætu fengið Turnberry-klúbbnum hans í Skotlandi réttinn til að halda Opna mótið í golfi, elsta golfmót í heimi og eitt af fjórum risamótum golfsins.
Johnson hafi tekið bónina upp við David Mundell, ráðherra málefna Skotlands, skömmu síðar þrátt fyrir að Lewis Lukens, aðstoðarsendiherra, hefði varað Johnson við því að það væri ósiðlegt að Trump nýtti forsetaembættið til að hagnast persónulega.
Mundell sagði bandaríska blaðinu að það væri óviðeigandi fyrir sig að ræða samtöl sín við Johnson sendiherra og vísaði til yfirlýsingar bresku ríkisstjórnarinnar um að Johnson hefði ekki sett fram neina ósk um Opna mótið eða annað íþróttamót. Yfirlýsingin svaraði þó ekki hvort að Johnson hefði rætt um Turnberry við Mundell.
Sendiráðsliðið slegið
Turnberry er einn af þeim völlum sem Opna mótið er reglulega haldið á. Næstu fjögur mót fara fram annars staðar. Klúbburinn er sagður hafa verið rekinn með tapi undanfarin ár og því gæti það haft verulega þýðingu fyrir reksturinn fengi hann til sín stórmótið.
Lukens, sem var starfandi sendiherra þar til Johnson tók við í nóvember árið 2017, og aðrir starfsmenn sendiráðsins eru sagðir hafa verið slegnir yfir uppákomunni. Hann lét utanríkisráðuneytið vita. Nokkrum mánuðum síðar bolaði Johnson Lukens úr embætti skömmu áður en skipunartíma hans átti að ljúka.
Sem forseti er Trump undanþegin lögum um hagsmunaárekstra sem gera það glæpsamlegt að embættismenn taki þátt í stjórnarathöfnum sem snerta persónulega fjárhagslega hagsmuni þeirra. Stjórnarskrárákvæði bannar þó að forseti þiggi gjafir frá erlendum ríkjum. Yrði Opna mótið haldið í Turnberry þyrftu bresk yfirvöld að greiða kostnað við öryggisgæslu sem gagnaðist fyrirtæki Trump og gæti fallið undir skilgreiningu stjórnarskrárinnar.
Blandar saman forsetaembættinu og fyrirtækjarekstrinum
Trump hefur samtvinnað viðskiptaveldi sitt og embættissetu á fordæmalausan hátt. Ólíkt fyrri forsetum neitað hann að losa sig út úr rekstrinum og lét þess í stað sonum sínum eftir að stýra því. Forsetinn hagnast áfram persónulega á rekstri fyrirtækjanna.
Um þriðjungi forsetatíðar sinnar hefur Trump svo varið í klúbbum og hótelum í eigu fjölskyldufyrirtækisins og uppsker þannig reglulega umfjöllun um eignirnar. Fjölmiðlum hefur gengið erfiðlega að afla upplýsinga um umfang greiðslna alríkisstjórnarinnar til fyrirtækisins í kringum þær heimsóknir.
Í fyrra var Trump gerður afturreka með hugmynd sína um að halda fund G7-ríkjanna í golfklúbbi sínum á Flórída. Bæði demókratar og repúblikanar gagnrýndu áformin sem urðu til þess að Trump ákvað að halda fundinn í Camp David. Honum var á endanum aflýst vegna kórónuveirufaraldursins.
Þegar Mike Pence, varaforseti, fór í opinbera heimsókn til Írlands í fyrra vakti gagnrýni að Trump forseti hvatti hann til þess að gista í golfklúbbi sínum í Doonbeg jafnvel þó að hann væri á hinum enda landsins. Var Pence sakaður um að nota heimsóknina til þess að fóðra vasa forsetans.