Innlent

Arn­dís Bára tíma­bundinn lög­reglu­stjóri í Eyjum

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. Vísir/Vilhelm

Arndís Bára Ingimarsdóttir hefur verið sett til að gegna embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum tímabundið. Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum.

Páley Borgþórsdóttir, sem gegndi stöðunni áður, tók við embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra fyrr í þessum mánuði.

Arndís Bára lauk fullnaðarprófi í lögfræði árið 2014 og hefur starfað á ákærusviði lögreglunnar í Vestmannaeyjum frá upphafi ársins 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×