Lífið

Hildur Guðnadóttir vann Golden Globe

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hildur tekur við Golden Globe-verðlaununum í Los Angeles í nótt.
Hildur tekur við Golden Globe-verðlaununum í Los Angeles í nótt. Vísir/AP

Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut í nótt Golden Globe-verðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker. Hildur er aðeins önnur konan til að vinna verðlaunin fyrir frumsamda kvikmyndatónlist og sú fyrsta sem vinnur þau ein.

Hildur notaði tækifærið í þakkarræðunni og þakkaði fjölskyldu sinni og samstarfsmönnum, leikstjóranum Todd Phillips og aðalleikaranum, Joaquin Phoenix. Þá tileinkaði hún verðlaunin Kára, syni sínum. „Þessi er fyrir þig,“ sagði Hildur á íslensku og lauk þar með máli sínu. Ræðu hennar má sjá hér fyrir neðan.

Að lokinni ræðunni ræddi Hildur við fréttamenn, með Golden Globe-styttuna í fanginu, og var m.a. spurð að því hvernig það væri að vera komin á mála hjá þekktum leikstjórum á borð við áðurnefndan Phillips.

„Ég hef tekið eftir örlítilli þreytu síðasta áratuginn eða svo varðandi það að treysta konum fyrir þessum stærri verkefnum. En ég held, vegna þeirrar vitundarvakningar sem hefur orðið síðustu ár um stöðu kvenna í bransanum, að ég hafi notið mjög góðs af því. Ég held að fólk sé opnara fyrir því að treysta konum í dag,“ sagði Hildur m.a. í svari sínu.

Horfa má á Hildi ræða við fréttamenn í spilaranum hér að neðan.

Hildur hefur farið sannkallaða sigurför um Hollywood undanfarin misseri. Hún vann Emmy-verðlaun fyrir tónlistina í þáttunum Chernobyl í september, World Soundtrack Awards í október, og var tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir sama verk í nóvember en sú verðlaunaafhending fer fram í lok janúar.

Þá er tónlist hennar í Joker ein af fimmtán verkum sem koma til greina í flokknum besta frumsamda kvikmyndatónlistin á Óskarsverðlaununum í ár.

Eins og áður segir er Hildur aðeins önnur konan til að vinna Golden Globe-styttuna í flokki kvikmyndatónlistar. Tónskáldið Lisa Gerrard hlaut þau ásamt kollega sínum, Hans Zimmer, fyrir tónlistina í kvikmyndinni Glatiator árið 2000.

Þá er Hildur annar Íslendingurinn til að vinna verðlaunin fyrir kvikmyndatónlist. Jóhann Jóhannsson vann Golden Globe árið 2015 fyrir tónlistina í kvikmyndinni The Theory of Everything og var tilnefndur 2017 fyrir Arrival. Þau Hildur voru samstarfsfólk í mörg ár.

Verðlaunahafar úr ýmsum áttum

Þá var Hildur ekki sú eina úr Jóker-liðinu sem vann til verðlauna í nótt en Joaquin Phoenix hlaut Golden Globe fyrir túlkun sína á Jókernum sjálfum.

Kvikmyndin 1917 var valin besta kvikmyndin í flokki dramamynda og leikstjóri hennar, Sam Mendes, var valinn besti kvikmyndaleikstjórinn.

Once Upon a Time in Hollywood hreppti verðlaunin í flokki söngleikja og grínmynda. Þá var Renée Zellweger valin besta leikkona í aðalhlutverki í dramakvikmynd fyrir hlutverk sitt sem Judy Garland í samnefndri kvikmynd.

Og þá lítum við til sjónvarps. Þáttaraðirnar Succesion, Fleabag  og Chernobyl, sem státar einmitt af tónlist Hildar, voru valdar þær bestu í sínum flokkum. Succesion og Chernobyl voru sýndar á Stöð 2 og eru aðgengilegar í Maraþoninu, efnisveitu Stöðvar 2.

Olivia Colman var verðlaunuð fyrir hlutverk sitt sem Elísabet Bretadrottning í þáttaröðinni The Crown og Phoebe Waller-Bridge hlaut Golden Globe fyrir titilhlutverkið í Fleabag.

Lista yfir verðlaunahafa má finna hér.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Phoenix þakkaði Hildi umbreytingu Jókersins í myndinni

Bandaríski leikarinn Joaquin Phoenix segist aldrei hafa orðið fyrir jafnmiklum áhrifum af kvikmyndatónlist og í tilviki tónlistar Hildar Guðnadóttur, sem semur tónlistina í stórmyndinni The Joker.

Hildur tilnefnd til Golden Globe

Hildur Guðnadóttir sellóleikari og tónskáld heldur áfram að slá í gegn á erlendum vettvangi en í dag var hún tilnefnd til hinna virtu kvikmyndaverðlauna Golden Globe fyrir tónlistina í kvikmyndinni Jókerinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.