Innlent

Björgunarsveitir hafa sinnt fleiri en 120 verkefnum

Jóhann K. Jóhannsson skrifar

Óveður hefur gengið yfir allt landið í dag. Mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar rúta með fjórtán innaborðs fauk út af á Kjalarnesi og þá fauk byggingarkrani á hús í Garðabæ og olli miklum skemmdum. Björgunarsveitir sinntu fleiri en hundrað og tuttugu verkefnum á meðan lægðin gekk yfir.

Appelsínugular viðvaranir Veðurstofunnar tóku gildi á sunnan-, suðvestan og vestaverðu landinu þegar veður tók að versna snemma í morgun. Vegagerðin virkjaði óvissustig og á tíunda tímanum var lokað fyrir umferð um Mosfells- og Lyngdalsheiði, Þrengsli og Hellisheiði. Þá var vegum á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum einnig lokað.

Mjög hvasst var á Kjalarnesi í dag og fóru vindhviður vel yfir 40 metra á sekúndu.Aðsend

Fólk skelkað eftir að rúta fór útaf á Kjalarnesi

Rétt fyrir klukkan tíu í morgun fengu svo lögregla og björgunarsveitir tilkynningu um að rúta hefði fokið út af Vesturlandsvegi á Kjalarnesi, rétt ofan við Hvalfjarðargöng. Fjórtán voru um borð og slasaðist enginn.

„Fólkið var allt óslasað og í lagi en að sjálfsögðu blotnaði á leiðinni á milli bíla og var talsvert skelkað,“ sagði Anna Filbert, björgunarsveitarmaður í Björgunarsveitinni Kili á Kjalarnesi en hún var með þeim fyrstu á vettvang.

Fólkið var flutt á fjöldahjálparstöð í Klébergsskóla ásamt öðrum ökumönnum, sem misst höfðu bíla sína út af veginum í veðurhamnum. Eftir hádegi voru svo allir fluttir í fjöldahjálparstöðinni til Reykjavíkur.

Jafn vindur á Kjalarnesi var 26 metrar á sekúndu og fóru hviður vel yfir 40 metra á sekúndu. Undir Hafnarfjalli fóru hviður hátt í fimmtíu metra á sekúndu.

Bjrögunarsveitarmenn stóðu vaktina við lokanir sem Vegagerðin setti á.Vísir/Friðrik

Vegir lokaðir, röskun á flugi og byggingarkrani hrundi

Samgöngur fóru víða úr skorðum og var öllu innanlandsflugi aflýst. Á Keflavíkurflugvelli var komum í morgun flýtt og brottförum eftir hádegi seinkað. Þá var nokkrum flugvélnum snúið frá Keflavíkurflugvelli þar sem ekki var hægt að lenda.

Mjög hvasst var á Reykjanesi og um hádegisbil var Reykjanesbraut lokað. Fjölmargir bílar lentu í vandræðum. Töluverð bílaröð myndaðist við álverið í Straumvík á meðan lokunin var í gildi. Á Reykjanesbraut sló í 28 metra á sekúndu í jöfnum vindi.

Á þriðja tug verkefna kom inn á borð aðgerðarstjórnar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meðal annars féll byggingarkrani í hús í Urriðaholti í Garðabæ.

„Ég var hérna í bílnum, undir krananum, þegar þetta gerðist. Horfði á hann fara yfir,“

Þak hússins er illa farið eftir að kraninn féll og þá skemmdist bíl sem stóð framan við húsið.Vísir/Friðrik

Mikil læti þegar kraninn féll

„Já það voru drunur inni, ég var að tala við konuna og krakkarnir voru skíthræddir,“ segir Magnús.

Sástu það fyrir að þetta mundi gerast?

„Ég hringdi í verktakann, ég sá að það var svona hreyfing á honum og um leið og hann skellti á þá fór hann yfir,“ segir Magnús.

Er þetta mikið tjón?

„Það held ég. Þakið er ónýtt,“ segir Magnús en auk þess skemmdist bíll í hans eigu.

Lítil umferð var um tíma á höfuðborgarsvæðinu á meðan lægðin gekk yfir.Vísir/Friðrik

Björgunarsveitarmenn sinntu fleiri en 120 verkefnum

Hundrað sjötíu og tveir björgunarsveitarmenn sinntu verkefnum á suðvesturhorni landsins og voru verkefnin um hundrað og tuttugu.

Um miðjan dag var svo opnað aftur fyrir umferð um Reykjanesbraut og Vesturlandsveg, þegar veður tók að ganga niður en á sama tíma fóru vegir norðanlands að loka. Þar og fyrir austan voru gular viðvaranir í gildi.

Ef spár Veðurstofunnar ganga eftir átti veðrið að vera gengið niður á öllu landinu klukkan sex í kvöld.


Tengdar fréttir

Segir algjörlega blint á köflum á Reykjanesbraut

Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til ökumanna að fara varlega og gera ráð fyrir slæmu veðri á Reykjanesbrautinni sem eigi að öllum líkindum eftir að versna á næstu klukkustundum.

„Óveður fram á kvöld“

Eftir hádegi mun úrkoma snúast úr snjó yfir í rigningu. Mun þá vaxa í ám og lækjum og ágætt er að huga að niðurföllum til þess að tryggja að vatn eigi greiða leið þar um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×