Lík þriggja barna fundust í húsi í úthverfi Dyflinnar á Írlandi í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að lögregla rannsaki andlát þeirra sem morð, að því er fram kemur í frétt Irish Times.
Kona, sem talin er móðir barnanna, fannst í miklu uppnámi fyrir utan húsið og var flutt á sjúkrahús til skoðunar. Lögregla vonaðist til þess að hægt yrði að ræða við konuna í dag. Hún er talin búa yfir „mikilvægum upplýsingum“ um málið. Börnin voru fjögurra, átta og tíu ára; tveir drengir og ein stúlka.
Lögregla segir rannsóknina á frumstigi og lýsir andláti barnanna sem „skyndilegu“ og „óútskýrðu“. Ekki hafa fundist neinar vísbendingar um að nokkur utanaðkomandi hafi verið í húsinu þegar andlát barnanna bar að. Þá fundust engin merki um innbrot.
Gengið er út frá því að börnin hafi búið í húsinu með móður sinni. Haft er eftir nágrönnum í frétt Irish Times að málið sé reiðarslag fyrir hverfið.