Innlent

Sjö greindust með veiruna innan­lands

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sjö greindust innanlands í gær. 
Sjö greindust innanlands í gær.  Vísir/Vilhelm

Sjö greindust með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 innanlands í gær og greindust þeir allir hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. Fjórir greindust á landamærunum og bíða þeir allir niðurstöðu úr mótefnamælingu samkvæmt nýjum tölum á covid.is.

501 sýni voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala og 2.805 á landamærunum. Þá voru 36 sýni greind hjá Íslenskri erfðagreiningu. Samkvæmt upplýsingum á covid.is eru 119 í einangrun. 605 eru nú í sóttkví og fækkaði þeim töluvert milli daga.

Einn liggur nú á sjúkrahúsi en enginn á gjörgæslu.

Enn eru virk smit í öllum landshlutum, langflest á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru einnig langflestir, eða 402, í sóttkví og fækkaði þeim um átján á milli daga. Þar á eftir kemur Suðurland, þar sem 73 eru í sóttkví og fækkaði þeim um 23 milli daga.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er 21,0 eins og í gær. Þá fór nýgengi landamærasmita úr 5,5 í 7,1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×