PSG sýndi mátt sinn og er komið í úr­slit Meistara­deildarinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir tveir áttu frábæran leik í liði PSG í kvöld.
Þessir tveir áttu frábæran leik í liði PSG í kvöld. EPA-EFE/David Ramos

Paris Saint-Germain reyndist of stór biti fyrir Julian Nagelsmann og lærisveina hans í RB Leipzig er liðin mættust í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hafði franska liðið betur 3-0 gegn spútnik liði keppninnar til þessa.

PSG byrjaði leikinn mjög vel. Fyrsta mark leiksins kom þó úr óvæntri átt en Brasilíumaðurinn Marquinhos stangaði aukaspyrnu Angel Di Maria í netið á 13. mínútu.

Neymar átti aukaspyrnu í stöngina lengst utan af kanti áður en Di Maria sjálfur tvöfaldaði forystu Parísar með 12. marki sínu á leiktíðinnni eftir hörmulega sendingu Peter Gulacsi í marki Leipzig. Markvörðurinn ætlaði sér að gefa á miðjumanninn Marcel Sabitzer en sendingin var slæm, miðja PSG vann boltann sem fór þaðan á Neymar sem sendi Di Maria í gegn.

Leipzig gat vart valið verri tímapunkt til að fá á sig mark en fyrri hálfleikur var í þann mund að renna út er Di Maria fann netmöskvana. Neymar hefði geta bætt við þriðja marki PSG en allt kom fyrir ekki og staðan 2-0 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Leipzig gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik og byrjaði síðari hálfleik af krafti. Þegar tíu mínútur voru hins vegar liðnar þá gerði PSG út um leikinn.

Di Maria átti þá sendingu á Juan Bernat sem skallaði knöttinn fram hjá Gulacsi af stuttu færi. Neymar hamraði boltanum reyndar í netið en hann var farinn yfir marklínuna þegar Brassinn slengdi fætinum í boltann.

PSG er verðskuldað komið í úrslit Meistaradeildarinnar.EPA-EFE/JOSE SENA GOULAO

PSG hefði hæglega getað bætt við marki eða mörkum í kvöld en þeir yfirspiluðu Leipzig einfaldlega frá A til Ö.

Lokatölur 3-0 og ljóst að við gætum fengið franskan úrslitaleik fari svo að Lyon leggi Bayern Munich annað kvöld. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira