Enski boltinn

Middlesbrough mistókst naumlega að komast úr fallsæti

Sindri Sverrisson skrifar
Rudy Gestede jafnaði metin fyrir Middlesbrough, 1-1.
Rudy Gestede jafnaði metin fyrir Middlesbrough, 1-1.

Middlesbrough setti í kvöld strik í reikninginn hjá Nottingham Forest sem er í baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildina í fótbolta. Boro rétt missti hins vegar af sigri sem hefði komið liðinu úr fallsæti.

Liðin gerðu 2-2 jafntefli á Riverside-velli Middlesbrough í kvöld. Ryan Yates kom Forest yfir á 29. mínútu en Boro komst í 2-1 fyrir hálfleik með mörkum frá Rudy Gestede og Lewis Wing. Það var svo þremur mínútum fyrir leikslok sem að Lewis Grabban tryggði Forest stig.

Forest er núna með 60 stig þegar 36 umferðum af 46 er lokið. Liðið er þremur stigum á eftir Fulham og átta stigum á eftir Leeds sem er í 2. sæti. Middlesbrough er með 38 stig í þriðja neðsta sæti, stigi á eftir Charlton og Stoke.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×