Lífið

Brad Pitt sagður vera kominn með kærustu sem líkist Angelinu Jolie og er 29 árum yngri

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Leikarinn Brad Pitt er sagður vera búinn að finna ástina á ný með þýsku fyrirsætunni Nicole Poturalski. 
Leikarinn Brad Pitt er sagður vera búinn að finna ástina á ný með þýsku fyrirsætunni Nicole Poturalski.  Getty

Leikarinn Brad Pitt er sagður vera genginn út og er nýja kærasta hans, Nicole Poturalski, 29 árum yngri. Nicole er þýsk fyrirsæta og hún talin vera mjög áþekk fyrrverandi eiginkonu Brad, Angelinu Joile. The Sun greinir frá.

Brad og Angelina skildu árið 2016 eftir tveggja ára hjónaband og eiga þau sex börn saman.  Angelina fer með forræði barna þeirra. 

Brad Pitt og Angelina Joile skildu árið 2016 eftir tveggja ára hjónaband. Getty

Brad, sem verður 57 ára á árinu, og Nicole, sáust saman á flugvelli í  París á gær þar sem þau reyndu að fara huldu höfði.

Nicole er eftirsóknarverð fyrirsæta í Þýskalandi og er sögð tala fimm tungumál. Hún á eitt barn og líkt og Brad þá hefur hún kosið að halda syni sínum frá sviðsljósinu að mestu. 


Tengdar fréttir

Vill losna undan stjórn föður síns

Bandaríska söngkonan Britney Spears leitaði í gær til dómstóla í tilraun til að koma í veg fyrir að faðir hennar verði lögráðamaður hennar á ný.

Brad Pitt og Jennifer Aniston sameina krafta sína

Leikararnir Brad Pitt og Jennifer Aniston eru á meðal Hollywood leikara sem taka þátt í upplestri á handriti kvikmyndarinnar Fast Times at Ridgemont High. Upplesturinn fer fram á netinu og verður sýnt frá viðburðinum á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.