Ekki orðið var við illt umtal um Hótel Rangá Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. ágúst 2020 17:05 Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár, er mikill flugáhugamaður. Vísir/Einar Árnason
Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár á Suðurlandi, óttast ekki að fjölmiðlaumfjöllun um hótelið í tengslum við smit sem uppgötvaðist hjá gestum hótelsins og sendi meðal annars ráðherra í ríkisstjórinni í sóttkví hafi slæm áhrif á reksturinn til framtíðar. Fólk viti betur en svo enda sýni dæmin að fólk geti smitast hvar sem er. Hann finni fyrir miklum stuðningi í samfélaginu. Þetta kom fram í máli Friðriks í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. „Síðustu dagar hafa verið býsna erfiðir skulum við segja,“ segir Friðrik sem hefur verið í sóttkví ásamt stærstum hluta starfsfólk Hótel Rangár undanfarna tíu daga eða svo. „Þetta kom okkur svo algjörlega í opna skjöldu, eins og þruma úr heiðskýru lofti og öllum varð illa við. Einhvern veginn var það nú þannig að það er með þetta eins og svo margt annað að þótt við séum öllu að reyna að gera okkar besta erum við útsett fyrir að þetta getur komið upp hvar sem er.“ Heima í sóttkví Sjö gestir og einn starfsmaður sem voru á Hótel Rangá helgina 15.-16. ágúst reyndust smitaðir af kórónuveirunni. Hótelinu var lokað í vikunni á eftir og hafa fjölmargir gestir og starfsmenn farið í sóttkví vegna veru sinnar á þessum tíma. Hótelið er lokað sem stendur enda Friðrik í sóttkví heima hjá sér eins og flest starfsfólk. „Vitanlega fórum við í ýmsar aðgerðir. Mest af því var eitthvað sem við vorum kannski ekki beðin um að gera. Við lokuðum umsvifalaust þegar þetta kom upp. Fysrt og fremst til að vernda velferð gesta okkar og starfsfólks. Jafnframt fengum við sérhæft fyrirtæki til að sótthreinsa allt húsið. Fyrst og fremst til að fullvissa okkur og okkar gesti um að við hefðum gert allt sem við gætum til að sýna þann möguleika sem við hefðum til að öllum liði betur.“ Nú er opnun í undirbúningi og stefnt á þriðjudaginn 8. september. Tilbúinn í slaginn á nýjan leik Ekki voru allir starfsmenn í fríi eða vakt á þessum tíma og því lausir til að sinna sinni vinnu. „Þannig að við erum alveg tilbúin að hleypa lífi aftur í hótelið þegar það er allt komið heim og saman.“ Sumarið gekk ágætlega að sögn Friðriks fram að hinni óvæntu stöðvun. Einstaklingarnir sem reyndust smitaðir tengjast ekki að öðru leyti en að þeir voru allir á hótelinu.Hótel Rangá. „Það var bara býsna mikið að gera. Auðvitað var dálítil aukning á útlendingum þennan tíma sem var opið. Íslendingar komu líka til okkar í býsna miklum mæli. Eins og margoft hefur komið fram eru heildartekjur hótelana lægri heldur en topptíminn júlí-ágúst á undanförnum árum. En miðað við aðgerðir sem hið opinbera hefur hjálpað okkur með, hlutabótaleið og þess háttar, höfum við komist þokkalega í gegnum sumarið.“ Þótti vænt um orð Ölmu Alma Möller landlæknir ítrekaði mikilvægi nærgætinnar umfjöllunar um kórónuveirufaraldurinn á upplýsingafundi í dag. Óviðeigandi væri að tengja smit, veirur eða faraldra við ákveðna staði líkt og dæmi séu um nú. Vísaði Alma þar til umræðu um þá veiru sem hefur náð að dreifast í samfélaginu undanfarnar vikur. Hún sagði smitin ýmist vera tengd við Akranes eða Rangá í samfélagsumræðunni en ítrekaði að ekki væri vitað um uppruna veirunnar. Tilfellin hefðu aðeins fundist þar. Hún sagði umrætt raðgreiningarmynstur nú greinast í öllum landshlutum og því ætti ekki að tengja það við tiltekna staði að hennar mati. „Mér þykir afskaplega vænt um að heyra að Alma hafi fjallað um þetta á fundinum í dag,“ sagði Friðrik sem hefur þurft að heyra nafn hótelsins endurtekið í miðlum undanfarnar vikur. „Það er augljóst að þegar við höfum undir þessum kringumstæðum gert allt sem við lifandi getum, fylgt öllum ráðleggingum um fjarlægðarmörk, spritt og handþvott og fleira þá verður manni auðvitað illa við. Það auðvitað sannar fyrir okkur þessum mannlegu verum sem við erum að þetta er alveg greinilega háð einstaklingssóttvörnum, hvernig svona hlutir dreifast. Það er lærdómurinn fyrir okkur öll. Það er enginn annar sem ver okkur fyrir þessu.“ Viðbrögð fólks mjög jákvæð Hann óttast þó ekki að umfjöllunin hafi neikvæð áhrif á reksturinn í framtíðinni. „Nei, ég held nú ekki. Hún er fræg þessi setning frá Hollywood að betra sé illt umtal en ekki neitt. En ég held að þetta sé ekkert illt umtal. Allir sem á annað borð hafa kynnt sér hvernig þessi veira er eða hvernig hún dreifist eru ekkert að kenna okkur um frekar en öðrum.“ Þá hafi viðbrögð fólks verið mjög jákvæð. Margir haft samband og sagt að því finnist leitt að þetta hafi komið upp. „Aðallega hefur maður áhyggjur af starfsfólkinu sem auðvitað mætir til vinnu með aðeins annað hugarfar en áður. Þau eru hræddari en áður og það láir þeim engum. Það vill enginn fá þessa veiru. Auðvitað verða allir á tánum en mikið meira getum við ekki gert. Vonum bara að þeir sem eru með einhver einkenni séu ekki að fara að koma á veitingastað, hótel eða aðrar samkomur. “
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Rangárþing ytra Mest lesið Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Samstarf Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Viðskipti innlent Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Viðskipti innlent Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Gæðin að batna og nóg af klementínum eftir helgi Neytendur Fleiri fréttir Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Rúnar nýr framkvæmdastjóri hjá Stólpum Gámum Bein útsending: Tillögur um tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar Bein útsending: Grænt Ísland til framtíðar – Hver er leiðin áfram? Trausti nýr forstjóri og fimmtíu sagt upp hjá Controlant Uppsagnir hjá Controlant Guðmundi falið að bera ábyrgð á hugverkum Carbfix Vonar að íslenskir verktakar hafi enn áhuga á Grænlandi Sjá meira