„Hann hefur greinilega unnið vel í sínum málum og er á mun betri stað í dag“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. ágúst 2020 11:00 Stefan Alexander Ljubicic fagnar marki sínu á móti Gróttu. Skjámynd/S2 Sport
Stefan Alexander Ljubicic skoraði sitt fyrsta Pepsi Max deildar mark fyrir HK í sigrinum á Gróttu og fékk hrós frá strákunum í Pepsi Max Stúkunni. Stefan Alexander Ljubicic kom HK í 1-0 í leiknum og skoraði reyndar annað mark í leiknum sem var dæmt af. HK-liðið þurfti mikið á framlagi að halda frá þessum tvítuga ára strax því margir leikmenn liðsins eru að glíma við meiðsli. Stefan Alexander kom til HK frá lettneska félaginu Riga FC í júní en hafði áður reynt fyrir sér í neðri deildunum í Englandi. Stefán er sonur Zoran Ljubicic sem lék á sínum tíma með HK í neðri deildunum. „Við sáum til hans í byrjun móts og það var ekki gott. Hann var þungur á sér og svifaseinn. Greinilega ekki í sérstöku standi. Hann var miklu miklu ferskari í þessum leik og bara í þessu fagni þá fannst mér hann líflegri heldur en í leikjunum í byrjun móts,“ sagði Atli Viðar Björnsson. „Hann hefur greinilega unnið vel í sínum málum og er á mun betri stað í dag heldur en hann var þá,“ sagði Atli Viðar. „Það var flott fyrir hann að skora þetta fyrsta mark og það var smá líf í honum í þessum leik. Hann þarf að halda áfram því hann hefur ekki sýnt mikið fyrr en í þessum leik,“ sagði Davíð Þór Viðarsson. „Ég held að hann átti sig alveg á því að hann er ekki búinn að sigra heiminn,“ sagði Atli Viðar. „Þetta er ágætis byrjun,“ sagði Davíð Þór. „Þetta er vonandi vendipunktur fyrir hann,“ sagði Atli Viðar en það má sjá umfjöllun Pepsi Max Stúkunnar um Stefan Alexander Ljubicic og HK-liðið hér fyrir neðan. Klippa: Stúkan - Stefan Ljubicic og HK umræða
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max stúkan HK Mest lesið Raygun segir að hatrið hafi verið hrikalegt Sport Hænuskrefi frá hálfum milljarði og gæfu fyrir íslenskan fótbolta Íslenski boltinn Kaupverðið klárt og Albert á leið í fjólublátt Fótbolti Hótuðu sjónvarpskonu og ófæddu barni hennar Sport „Var kominn með hausverk á hliðarlínunni“ Fótbolti Finnst mjög óréttlátt að bronsið sé tekið af henni Sport Fertug Fríða er alls ekki hætt Íslenski boltinn Íslenska fánanum flaggað í Flórens til að fagna komu Alberts Fótbolti Ed Sheeran eignast hlut í ensku félagi en frábiður sér kvart og kvein Enski boltinn „Ef ég get verið í stuttbuxum og bol væri það frábært“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er aðeins meira en bara fótboltaleikur“ „Ef ég get verið í stuttbuxum og bol væri það frábært“ Fresta bikarúrslitaleik karla til 21. september Hænuskrefi frá hálfum milljarði og gæfu fyrir íslenskan fótbolta Fertug Fríða er alls ekki hætt Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Tindastóll 5-1 | Sýning í Víkinni Uppgjörið: Þór/KA - Stjarnan 2-2 | Sandra tryggði heimakonum stig Uppgjör og viðtöl: Keflavík - FH 3-4 | Stórkostleg endurkoma hjá FH-liðinu gegn lánlausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-2 | Blikar halda í við toppinn en Valur að missa af lestinni KR kærir og segir KSÍ mismuna félögum Pálmi kallaður á skrifstofuna og Óskar Hrafn tekur við Besta upphitunin: „Auðvitað fylgir maður alltaf börnunum“ „Drengilega leikið en samt opið og skemmtilegt, það er draumurinn“ Gylfi fór illa með gamla félagið sitt síðast „Á erfitt með að sjá og skilja lætin í kringum þetta“ Damir áfram í Kópavoginum Pottur víða brotinn og börnin borgi brúsann Fjölnir naumlega á toppnum og Þróttur nálgast umspil Svakaleg dramatík þegar ÍBV kastaði frá sér stigum í toppbaráttunni Samantha Smith í Breiðablik Gervigrasi KR lokað vegna slysahættu Óskar Hrafn tekur strax við KR Stjórn KSÍ vísaði erindi KR frá Hybrid-völlurinn í Hafnarfirði: „Grasið hefur staðist allar væntingar og rúmlega það“ Helgi Fróði seldur til Helmond Sport „Nú tók ég skrefið í besta liðið á Íslandi“ Sálfræðingur íslenska Ólympíuliðsins lætur trúðana í Bestu deildinni heyra það Glugginn lokast: Præst í KR þegar leiktíðinni lýkur og Sowe heldur kyrru fyrir Fyrrverandi þjálfari Gróttu eftirsóttur Stjarnan án þriggja lykilmanna gegn KA Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Keflavík - FH 3-4 | Stórkostleg endurkoma hjá FH-liðinu gegn lánlausum Keflvíkingum