Segja Mane vilja endurnýja kynnin við Koeman Anton Ingi Leifsson skrifar 29. ágúst 2020 14:00 Sadio Mane í leik með Liverpool á síðustu leiktíð en hann var einn besti leikmaður liðsins. vísir/getty
Sadio Mane er tilbúinn að endurnýja kynnin við Ronald Koeman, stjóra Barcelona, hjá spænska stórliðinu en Koeman og Mane unnu saman hjá Southampton. Spænski miðillinn Mundo Deportivo greinir frá þessu og segir að Senegalinn horfi í það að vinna einstaklingsverðlaun. Það muni frekar takast hjá Barcelona en Liverpool. Mane hefur verið hluti af hinum ódauðlega tríói í fremstu víglínu Liverpool; Roberto Firmino, Mohamed Salah og Mane sjálfur. Þeir hafa verið í lykilhlutverkum síðustu tvö tímabil er liðið hefur unnið Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina. Koeman og Mane unnu saman í tvö ár hjá Southampton. Þar skoraði Mane 25 í 75 leikjum áður en hann færði sig yfir til Liverpool en Senegalinn er sagður ekki fá þá viðurkenningu á Englandi sem hann á skilið. Spænska dagblaðið segir frá því að Mane telji að sama hvað hann gerir hjá Liverpool munu þeir Jordan Henderson eða Mo Salah fá það hrós, sem Mane finnst að hann sjálfur eigi skilið. Barcelona gæti þurft að punga út um 120 milljónum punda ætli þeir að fá Mane og verður það að teljast ólíklegt eftir að liðið keypti Ousmane Dembele, Antoine Griezmann og Philippe Coutinho á fúlgur fjár síðustu ár. Sadio Mane 'open to Barcelona move' and reunion with Ronald Koeman https://t.co/WEI6SS0g21— MailOnline Sport (@MailSport) August 29, 2020
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Fleiri fréttir Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótboltaráðstefna Norðurlanda í Reykjavík næsta vor Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fram fær liðsstyrk úr Breiðholti „Þetta er dýrmætur tími og maður finnur hvað þetta skiptir mann miklu máli“ Gísli Gottskálk verðlaunaður með nýjum samningi Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Tímabilið búið hjá Rodri Hermann hættur með ÍBV Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Bestu guttarnir í Bestu deild karla Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Sjá meira