Erlent

Josh Groban fær fimm ára nálgunar­bann gegn að­dáanda

Sylvía Hall skrifar
Josh Groban.
Josh Groban. Vísir/Getty

Söngvarinn Josh Groban hefur fengið fimm ára nálgunarbann gegn Shawna Marie Laing vegna kynferðislegrar áreitni. Laing má því ekki vera í minna en níutíu metra fjarlægð frá söngvaranum, kærustu hans og fjölskyldu.

Groban og Laing kynntust árið 2011 í gegnum sameiginlega Facebook-vini og höfðu ætlað að fara á stefnumót. Groban þurfti að aflýsa stefnumótinu vegna veikinda og var það upphafið að áralangri áreitni sem ágerðist með árunum.

Í maí síðastliðnum skildi hún eftir pakka við heimili hans þar sem mátti finna litla hauskúpu, blóm og bók með handskrifuðum bréfum með kynlífslýsingum.

Laing hafði einnig sent skilaboð til núverandi kærustu Groban, leikkonunnar Schuyler Helford, en þau hafa verið saman síðan árið 2017. Flest skilaboðin til Groban voru kynferðisleg en hegðunin hafði versnað til muna á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×