Fótbolti

Grátlegt jafntefli í fyrsta leik tímabilsins

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Aron Einar lék allan leikinn er Al Arabi henti frá sér sigrinum í fyrsta leik tímabilsins.
Aron Einar lék allan leikinn er Al Arabi henti frá sér sigrinum í fyrsta leik tímabilsins. Simon Holmes/Getty Images

Al Arabi, lið Heimis Hallgrímssonar og Arons Einars Gunnarssonar, fékk á sig jöfnunarmark í uppbótartíma er nýtt tímabil í Katar fór af stað, lokatölur 2-2.

Mohammad Salah Al-Neel skoraði tvívegis í fyrri hálfleik og sá til þess að lærisveinar Heimis voru 2-0 yfir er flautað var til hálfleiks. Heiammenn minnkuðu muninn þegar átján mínútur voru til leiksloka og þegar það var komið langt fram yfir venjulegan leiktíma jöfnuðu þeir metin.

Lokatölur því 2-2 og ljóst að Heimir og Aron Einar fara súrir á koddann í kvöld enda sekúndum frá því að næla í þrjú stig í dag.

Aron Einar lék allan leikinn á miðju Al-Arabi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×