Fótbolti

Sara Björk í byrjunarliðinu er Lyon hóf titilvörnina á sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sara Björk var á sínum stað í byrjunarliði Lyon í dag.
Sara Björk var á sínum stað í byrjunarliði Lyon í dag. vísir/getty

Frakklannds- og Evrópumeistarar Lyon hófu titilvörn sína með öruggum 4-0 sigri á Paris FC í dag. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir var í byrjunarliðinu en var tekinn af velli þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka.

Staðan var reyndar óvænt markalaus í hálfleik og augljóslega smá ryð í liði Lyon sem hefur eflaust fagnað sigri sínum í Meistaradeild Evrópu á dögunum vel og innilega. Í þeim síðari blésu Sara Björk og stöllur í herlúðra og keyrðu yfir andstæðinga sína.

Miðvörðurinn Wendie Renard kom Lyon yfir eftir rúmlega tíu mínútna leik í síðari hálfleik. Saki Kumagi bætti við öðru marki liðsins á 69. mínútu og varamaðurinn Eugénie Le Sommer skoraði sjö mínútum síðar. Það var svo Kumagi sem skoraði fjórða og síðasta markið þegar þrjár mínútur voru til leiksloka.

Lokatölur 4-0 Lyon í vil og ljóst að liðið ætlar sér ekkert að slaka á eftir gott gengi á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×