Innlent

Svona var 111. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Alma Möller, landlæknir, mun fara yfir stöðu mála á fundinum ásamt þeim Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni, og Rögnvaldi Ólafssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni.
Alma Möller, landlæknir, mun fara yfir stöðu mála á fundinum ásamt þeim Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni, og Rögnvaldi Ólafssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni. Vísir/Vilhelm

Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boða til upplýsingafundar vegna kórónuveirufaraldursins klukkan 14 í dag.

Á fundinum munu þau Alma Möller, landlæknir, og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, fara yfir stöðu mála hér á landi ásamt Rögnvaldi Ólafssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni.

Í gær greindust fjórir með veiruna innanlands og voru tveir þeirra í sóttkví. Þrjú smit greindust á landamærunum.

Hér fyrir neðan má fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum og textalýsingu á því sem fram fer.

Uppfært: Hér að neðan má sjá fundinn í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×