Innlent

Yfir fjögur þúsund tóku þátt í fréttaljósmyndakeppni á heimsvísu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, og Kristinn Magnússon, formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands, við sigurmynd keppninnar.
Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, og Kristinn Magnússon, formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands, við sigurmynd keppninnar. Mynd/Daníel Þór

Ljósmyndasýningin World Press Photo opnaði í gær í Kringlunni. World Press Photo stendur fyrir stærstu og veglegustu samkeppni heims á sviði fréttaljósmynda á hverju ári og í þetta skipti tóku yfir fjögur þúsund atvinnuljósmyndarar þátt í keppninni.

Sýningin í Kringlunni samanstendur af verðlaunamyndum keppninnar, auk stafrænna frásagna.

Ljósmynd sem dómnefnd útnefndi sem Fréttaljósmynd ársins var tekin af japanska ljósmyndaranum Yasuyoshi Chiba fyrir Agence France – Presse. Myndin sýnir ungan mann, sem er lýstur upp af farsímum, flytja mótmælaljóð meðan mótmælendur kyrja slagorð og krefjast borgaralegrar stjórnar þegar slökkt var á ljósum í Khartoum, Súdan, 19. júní.

Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, opnaði sýninguna formlega í gær auk þess sem Kristinn Magnússon, formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands, hélt stutt erindi.

Í ár tóku 4.282 atvinnuljósmyndarar frá 125 löndum þátt í keppninni. Alls bárust 73.996 ljósmyndir.

Frá sýningunni í Kringlunni.Mynd/Daníel Þór



Fleiri fréttir

Sjá meira


×