Fótbolti

Willum skoraði tvö mörk og Viktor Gísli lokaði markinu hjá GOG

Anton Ingi Leifsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson fagnar vítavörslu með landsliðinu.
Viktor Gísli Hallgrímsson fagnar vítavörslu með landsliðinu. EPA-EFE/JOHAN NILSSON

Willum Þór Willumsson átti frábæran leik fyrir Bate Borisov er hann skoraði tvö mörk í 5-2 sigri liðsins á Smolovichy í dag í Hvíta-Rússlandi.

Willum skoraði fyrsta markið á ellefu mínútu og skoraði svo þriðja mark Bate á 61. mínútu er hann kom þeim í 3-1.

Bate er í 2. sætinu í Hvíta Rússlandi með jafn mörg stig og topplið Shakhtyor Soligorsk.

Í danska handboltanum átti Viktor Gísli Hallgrímsson afar góðan leik fyrir GOG sem vann átta marka sigur á Århus, 29-21.

Leikurinn var liður í fyrstu umferð danska handboltans en Viktor Gísli varði ellefu skot eða um 36% markvarsla.

Sterk byrjun hjá GOG sem er með einn Íslending á sínum snærum þetta tímabilið en var með þrjá á síðustu leiktíð.

Sandra Erlingsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir EH Álaborg er liðið vann fjögurra marka sigur á SönderjyskE í fyrstu umferðinni kvennamegin í Danmörku.

Sandra gekk í raðir Álaborgarliðsins í sumar frá ÍBV en hún hafði skipt einnig um mitt sumar frá Val yfir til ÍBV.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×