Engir áhorfendur verða leyfðir á leikjum KSÍ sem hefjast eftir kl. 14 í dag. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu sambandsins.
Það verða því áhorfendur á leik Fjölnis og KA sem hefst kl. 14, sem og leikjum í öðrum deildum sem hefjast þá eða hófust fyrr, en áhorfendabann á leikjum sem hefjast síðar í dag.
Tilkynning KSÍ:
Að beiðni Almannavarna um að íþróttahreyfingin sýni frumkvæði varðandi sóttvarnir hefur stjórn KSÍ ákveðið að að allir leikir í öllum flokkum og aðrir viðburðir á vegum KSÍ fari fram án áhorfenda þar til annað verður ákveðið og nær þessi ákvörðun til leikja sem hefjast eftir kl.14:00 í dag, laugardaginn 19. september. Staðan verður endurmetin á mánudagsmorgunn í samráði við yfirvöld og framhaldið ákveðið og tilkynnt eins fljótt og mögulegt verður.